Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
svg

54

svg

48  Skoðendur

svg

Skráð  5. maí. 2025

raðhús

Bárugata 2

815 Þorlákshöfn

83.900.000 kr.

587.124 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532153

Fasteignamat

67.050.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
142,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Bárugötu 2, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og smekklega innréttað 3 herbergja fullbúið endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð 142.9 fm. og þar af er íbúðarhluti 115.2 fm. og bílskúr 27.7 fm.  Húsið er vel staðsett í Vesturbyggð sem er nýtt hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. Húsið er er klætt að utan með álklæðningu og álþakköntum. Eignin er tilbúin til afhendingar. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX


Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofa / borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með hvítum fataskápum, innangengt er úr forstofu í bílskúr, fallegar flísar á gólfi. 
Eldhús: Í alrými er fallegt eldhús með hvítri innréttingu, eyja með góðum skúffum og borðplötu sem nær út fyrir innréttinguna sem hægt er að sitja við, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými er stór og björt stofa með útgengi út á lóð, gluggar í suður og austur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri hvítri innréttingu, tvöfaldur vaskur, ljósaspegill, upphengt salerni, walk in sturta með dökku gleri, útgengi út á baklóð, flísar á gólfi og inn í sturtu. 
Þvottahús:  Rúmgott, með góðri hvítri innréttingu, vinnuborð og vaskur, flísar á gólfi. 
Bílskúr: Stærð 27.7 fm., rafmagnstafla og hitastýringar fyrir gólfhita, flekahurð, epoxy á gólfi.
Gólfefni, innréttingar og tæki: Gólf eru klædd með fallegu parketi frá Birgisson og flísar eru frá Álfaborg. Hvítar innhurðir eru frá Birgisson. Innréttingar og tæki eru frá Ikea. 

Lóð: Lóð verður þökulögð og í innkeyrslu og fín möl í bílaplani, sorptunnuskýli verða komin. 
Húsið: Húsið er byggt 2024 og er úr úr timbri og klætt með grárri álklæðningu og hvítum álþakköntum, járn er á þaki. Innfelld lýsing er í flestum rýmum. Gólfhiti er í húsinu og hitastýringar eru í öllum rýmum. Ídráttarrör er komið fyrir heitan pott á baklóð og að framanverðu. 

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík