Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
raðhús

Katlahraun 20

815 Þorlákshöfn

81.900.000 kr.

589.209 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2508895

Fasteignamat

66.700.000 kr.

Brunabótamat

66.030.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
139 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Katlahraun 20, 815 Þorlákshöfn:
Glæsilegt og smekklega innréttað 3 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 139 fm. þar af er íbúðarhluti 112.8 fm. og bílskúr 26.2 fm. Stórum sólpallur sem snýr í suður, vestur og norður. Húsið er vel staðsett í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir. 

STUTTUR AFHENDINGARTÍMI. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofu / borðstofu, tvö svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottahús og bílskúr (geymsluloft).

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengt út á stóran suður, vestur og norður sólpall, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.  
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og stórri eyju með miklu skápaplássi, uppþvottavél fylgir með, spanhelluborð á eyju og bakaraofnar sem fyrir eru fylgja ekki með (ný tæki sem fylgja með verða keypt fyrir afhendingu), innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Gangur: Innfelld lýsing, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, fataskápur, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, walk in sturta, upphengt salerni, útgengi út á sólpall, flísar á gólfi og veggjum
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 26.2 fm. bílskúr, lúga upp á geymsluloft, epoxy málning á gólf.
Húsið: Húsið er byggt 2021 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni. Gólfhiti er í húsinu. Innréttingar eru frá Ikea. 
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu og stétt að húsi, á suður, vestur og norðurhlið er ca. 90 fm. sólpallur. 

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  79.980,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. júl. 2021
4.480.000 kr.
43.800.000 kr.
139 m²
315.108 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík