Velkomin í opið hús miðvikudaginn 7. maí kl. 16:45. Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is
Lýsing
Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is
Komið er inn á anddyri/hol með parketi og fatahengi. Björt og falleg parketlögð stofa & borðstofa með parketi. Fallegt eldhús sem var endurgert 2023, hvít sprautulökkuð innrétting og vönduð tæki, innfelld uppþvottavél. Baðherbergi með flísum á gólfi, nýlega búið að skipta um innréttingar og salerni, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi er á baðinu. Rúmgott hjónaherbergi með parketi, nýlegur opinn fataskápur. Barnaherbergi með parketi. Barnaherbergi með parketi (var áður hluti af stofu). Í sameign er sameiginleg hjólageymsla og þvottahús ásamt sérgeymslu íbúðarinnar. Stigahúsið er mjög snyrtilegt og nýlega búið að mála og setja ný teppi.
Góður bakgarður er á lóðinni með skemmtilegu leiksvæði umluknu trjám og gróðri, sameiginleg bílastæði eru við húsið þar sem eru rafhleðslustöðvar.
Húsið var viðgert að utan og skipt um glugga í kringum 2007, það var svo málað aftur 2019. Skipt var um eldhús í íbúðinni 2023 og á sama tíma sett nýtt parket. Skipt út tenglum og rofum 2023 og settar nýjar rafmagnslagnir í eldhúsi 2023. Skipt út lömum og læsingarjárnum í öllum gluggum 2025.
Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal. Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, Heilsugæsluna á Kirkjusandi, alla útivist í Laugardalnum.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.