Opið hús: NORÐURTÚN 10, 700 Egilsstaðir. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 13. maí 2025 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
Opið óbyggt svæði er aftan við húsið, Eyvindará rennur aftan við húsið. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Einbýlishús með bílskúr byggt árið 2007. Eignin skiptist í einbýli 154.0 m² og bílskúr 38.4 m² samtals 192.4 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi og hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur, gestasalerni og þvottahús. Bílskúr og geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri, flísar á gólfi, þrefaldur fataskápur. Gestasalerni er innaf anddyri, flísar á gólfi, handlaug, upphengt salerni.
Alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi og holi, parket á gólfi (nema í eldhúsi), upptekið loft.
Eldhús, flísar á gólfi, innrétting og eyja, helluborð í eyju, háfur yfir eyju, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt),
útgengt út á timburverönd með skjólveggjum, heitur pottur á verönd.
Herbergi I, hjónaherbergi, parket á gólfi, sexfaldur fataskápur.
Herbergi II, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi III, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Inn af stofu, við forstofuna er gert ráð fyrir fjórða svefnherberginu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni, sturta og baðkar, innbyggð lýsing, handklæðaofn og gluggi.
Þvottahús og geymsla, flísar á gólfi, vinnuborð með vask, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, handklæðaofn, útgengt út í garð.
Gólfhiti: Danfoss stýringar á veggjum. Gólfhitakista, inntök og rafmagnstafla eru í bílskúr.
Bílskúr, málað gólf, bílskúrshurð með rafdrifnum mótor, vinnuborð með vask, gönguhurð. Aflokuð geymsla er innst í bílskúr, veggfastar hillur og gluggi.
Norðurtún 10 er timburhús á einni hæð með stakstæðum bílskúr. Húsið er klætt að mestu með liggjandi járnklæðningu auk viðarklæðningar við inngang og glugga, járn á þaki.
Timbur/ál gluggar og hurðar. Bílskúr er klæddur að utan með liggjandi járnklæðningu, flatt þak á bílskúr. Hellulagt bílaplan og aðkoma að húsi, pláss fyrir þrjár til fjórar bifreiðar (á teikningu tvær bifreiðar).
Timburverönd u.þ.b. 100 m² með skjólveggjum. Lóð er 878.4 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 15 febrúar 2007.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 217-0100.
Stærð: EInbýli 154.0 m². Bílskúr 38.4 m². Samtals 192.4 m²
Brunabótamat: 93.200.000 kr.
Fasteignamat: 84.100.000 kr
Byggingarár: 2007
Byggingarefni: Timbur.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala