Upplýsingar
Byggt 2006
192,4 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
INNI fasteignasala s. 580 7905 - inni@inni.is
Stofa og eldhús eru í nokkuð opnu rými þar sem parket er í stofu en flísar í eldhúsi. Allt parket í húsinu var endurnýjað árið 2023. Í eldhsúsi er flott innrétting með eyju. Búið er að endurnýja borðplötu en á eyju er steinn. Útgengt er úr rýminu á timburverönd í garði. Í húsinu er rúmgott sjónvarpshol með parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar, sturta, handklæðaofn og góð innrétting. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í þremur herbergjum. Teikning gerir ráð fyrir að hægt sé að fækka um eitt herbergi og stækka stofu sé vilji til þess. Þvottahús er flísalagt, þar er fín innrétting og úr þvottahúsi er gengt út í garð. Forstofa er nokkuð rúmgóð með fataskáp og flísum á gólfi. Flísar eru einnig á gestasalerni inn af forstofu.
Yfir einu svefnherbergi er rúmgóð og aðgengileg geymsla/háaloft.
Bílskúr er flísalagður og innst í bílskúr er geymsla. Hleðslustöð fyrir rafbíla er í bílskúr.
Bílastæði er hellulagt og með snjóbræðslukerfi sem og aðkoma að húsi.