Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
atvinnuhúsnæði

Bugðufljót 17C

270 Mosfellsbær

61.000.000 kr.

373.775 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2514683

Fasteignamat

42.450.000 kr.

Brunabótamat

40.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
163,2 m²
svg
0 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og vandað atvinnuhúsnæði á stórri lóð við Bugðufljót 17C á Tungumelum í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 158,8 m2, þar af atvinnurými 108,0 m2 og milliloft 50,8 m2. Stór innkeyrsluhurð (4,2x4 m) með rafmagnsopnun að framan sem og gönguhurð í hverju bili að framan og út á svalir að aftan. 2 bílastæði fylgja fyrir framan hvert bili. Mögulegt er að fjölga bílastæðum gegn greiðslu. Húsið er reist úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Eignin er laus við kaupsamning fullbúin skv. skilalýsingu byggingaraðila á byggingarstigi B4.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
 
Verð kr. 61.000.000 kr. 

Skilalýsing byggingaraðila:
Eignin afhendist á fullbúin á byggingarstigi B4 (skv. nýja staðlinum). Húsin eru fullfrágengin að utan, bæði þak og veggir ásamt þakrennum og niðurföllum. Gönguhurðir og gluggar í hverjum rými sem og innkeyrsluhurðir með rafmagnsopnun 4X4,2m er frágengnar og stilltar. Útiljós eru á langhliðum húsanna við/yfir innkeysluhurðum sem lýsa upp bílaplan. Bílaplan er fullfrágengið malbikað með niðurföllum, olíuskilju og sorpaðstöðu. Á sömu lóð eru einnig Bugðufljót 17D, B og C. Bugðufljót 17 A og D eru 1 hæð og hús B og C eru 2 hæðir.

Útveggjaeiningar eru frá Smellinn samlokueiningar með VÖLUN að utanverðu, veðurkápa 7 sm. einangrun 10 sm. og burðarveggur 15 sm. Þakið eru yleiningar (Sandwich) og límtré. Annarhver milliveggur milli bila eru steinsteyptar einingar og annarhver er yleiningar. Yfirborð steyptra veggja að innan er málað. Yfirborð yleiningar er lakkað málmyfirborð. Gólf er vélslípuð. Gólfhiti til upphitunar er lagður í botnplötu 8 metra inn fyrir innkeyrsluhurð í hverju bili og er hann tengdur við dreifikistu, þó án stjórnbúnaðar.

Sér inntak og mælar fyrir heitt vatn og rafmagn er fyrir hvert bil. Rafmagnstafla ásamt mæli og höfuðöryggi (lekaliða) er tengd í töflukassa. Gert er ráð fyrir 3ja fasa rafmagni í hverju bili. Rafmagnsmælar er staðsettur í tæknirými í enda 17b. Kalt og heitt vatn er tengt við mælagrind í hverju bili. Mælar er komnir í öll bil. Lagnir hverskonar innanhúss umfram það sem að ofan er getið eru á vegum kaupanda.

Ákvílandi er á eigninni vsk kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina. Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem verður 0,3% af endanlegu brunabótamati.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ