Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

500

svg

376  Skoðendur

svg

Skráð  16. maí. 2025

fjölbýlishús

Flétturimi 31

112 Reykjavík

83.900.000 kr.

728.299 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2039846

Fasteignamat

73.750.000 kr.

Brunabótamat

56.060.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
115,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir fallega og bjarta 4 til 5 herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í góðu fjölbýli í Rimahverfinu í Grafarvogi við Flétturima. Aukin lofthæð í stórum hluta íbúðar og risloft sem ekki er skráð í fermetratölu eignar. Merkt stæði í bílskýli fylgir eigninni. 2020 var eldhús endurnýjað, skipt um gólfefni (parket) og hurðir í íbúð. Fallegt útsýni til hafs allt upp á Snæfellsjökul. Steypt stigahús og deilir íbúðin inngang, anddyri með 1 íbúð og þar er einnig inngangur í þvottahús fyrir hæðina þar sem hver er með sín tengi.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er eignin skráð 115,2 fm og þar af er geymsla 7 fm.

Nánari lýsing:
Forstofuhol
er rúmgott með góðum yfirhafnaskáp og parket á gólfi. Aukin lofthæð.
Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð með parket á gólfi og aukna lofthæð. Útgengt á góðar vestur svalir. Glæsilegt útsýni til sjávar og upp á Snæfellsjökul.
Eldhús við hlið stofu var allt endurnýjað 2020 og er með parket á gólfi, innbyggðan ísskáp og uppþvottavél, háf yfir helluborði, quartsstein á borðum og góðan borðkrók og þar á móti opið búr með mjög góðu geymslurými. Aukin lofthæð.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðan skáp og parket á gólfi. Aukin lofthæð.
Barnaherbergi eru 2 og bæði með parket á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari með sturtu, dúk á gólfi og flísar á vegg við baðkar.
Risloft yfir hluta íbúðar sem ekki er inn í fermetratölu íbúðar. Fordæmi eru fyrir því að setja þakglugga og breyta í herbergi en getur einnig nýst sem sjónvarpshol.

Bílastæði íbúðar er í bílskýli á lóð.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign í kjallara.
Hjólageymslur eru 2, önnur á jarðhæð og hin í sameign í kjallara hússins.

Falleg og fjölskylduvæn eign á góðum stað. Stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veita Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is og Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. des. 2020
48.050.000 kr.
52.000.000 kr.
115.2 m²
451.389 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík