Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

73

svg

56  Skoðendur

svg

Skráð  21. maí. 2025

fjölbýlishús

Engjasel 54

109 Reykjavík

78.900.000 kr.

623.715 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2055459

Fasteignamat

65.150.000 kr.

Brunabótamat

69.990.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
126,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu fallega 5 herbergja íbúð við Engjasel 54 á frábærum stað í Seljahverfinu. Íbúðin er í góðu fjölbýlishúsi með sér bílastæði í bílageymslu og útleiguherbergi með aðgangi að baðherbergi sem býður upp á ýmsa möguleika. 

Um er að ræða virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 4-5  herbergja íbúð á 2. hæð ásamt útleiguherbergi í kjallara og sér stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin sem er 126,5 fm skiptist þannig: Íbúðin er 97,2 fm og 4ra herbergja. Gengið er inn af stigagangi í forstofu. Rúmgóð og björt stofa með útgengi út á svalir. Eldhús með fallegri innréttingu á tveimur veggjum og góðum tækjum. Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús með skolvaski og innréttingum. Rúmgott sjónvarpshol og inn af því þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og með góðri innréttingu og baðkari. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi sem og tvö önnur herbergi. 

Íbúðarherbergi í kjallara er 21,3 fm er bjart og fallegt með lítilli eldhúsinnréttingu og góðum glugga með útsýni yfir garðsvæðið. Sameiginlegt skápapláss á gangi og sameiglegt baðherbergi.
Geymsla íbúðar í kjallar er um 8 fm.

Sameign er mjög snyrtileg og góð aðstaða fyrir hjól og vagna. Sér aðstaða er fyrir hverja íbúð til að geyma útiföt o.þ.h. Stórt og rúmgott þurrkherbergi er svo inn af hjólageymslu. Rúmgott bílastæði (30 fm) er í upphitaðri bílageymslu þar sem er mjög góð sameiginleg aðstaða til bílaþvotta. Heitt og kalt vatn. Snjóbræðsla er í innkeyrslu og einkastæði á baklóð.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar og parket á gólfi og rúmgóður fataskáp.
Hjónaherbergi: Gott skápapláss. Parket á gólfi.
Barnaherbergi:  Gott skápapláss. Parket á gólfi.
Fataherbergi/barnaherbergi: Mikið og gott skápapláss. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfum. Innrétting með baðskáp, salerni og baðkar.
Þvottahús: Flísar á gólfi.
Eldhús: Hvít smekkleg innrétting  innbyggð uppþvottavél í innréttingu, góður borðkrókur.
Geymsla: Á sameignargangi í kjallara. Steypt gólf, gott hillupláss.   
Íbúðarherbergi: Lítil eldhúsinnrétting, parket á gólfi og góðir gluggar. Aðgangur að sameiginlegu baðherbergi og þvottahúsi í sameign.
Bílageymsla: Þar fylgir íbúðinni sérmerkt stæði. rafdrifinn innkeyrsluhurð. Sér hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla og stæði til bílaþvotta.          

Annað: 
Parket á íbúð er nýlega endurnýjað
Baherbergi og eldhús endurnýjað 2010 ca.
Raflagnir og tenglar nýlega endurnýjað
Búið er að skipta um þak á húsinu
Umfangsmikil múr- og gluggaviðgerð stendur yfir

                                                                                                                                                                                                                                  
Hér er á ferð eign í eftirsóttu barnvænu hverfi. Stutt er að sækja grunnskóla og leikskóla. Gott leiksvæði með tækjum er sameiginlegt með íbúðum 52-68.
Hafðu samband við Bjössa og bókaðu skoðun því sjón er sögu ríkari!

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. nóv. 2019
39.500.000 kr.
44.900.000 kr.
118.5 m²
378.903 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík