Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1970
100,3 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 27. maí 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Kóngsbakki 9, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 11. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 27. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Ævar Jóhanns - löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna í einkasölu Kóngsbakka 9.
Mjög flott fjögurra herbergja 100,3 fm íbúð með marga möguleika.
Eldhús og þvottahús allt nýlega tekið í gegn af fagaðila.
Baðherbergi með gólfhita, endurnýjað af fyrri eiganda.
Nýjar hurðar innan íbúðar og herbergi þröskuldalaus.
Nýlegt flæðandi parket á gólfum.
Nýir gluggar í öllum svefnherbergjum.
Eign á 3.hæð með góðum svölum í suðvestur átt með fínu útsýni og glæsilegum sameiginlegum garði.
Þvottahúsi innan íbúðar.
Snyrtilegt fjölbýli á góðum stað nálægt allri helstu þjónustu.
Smellið hér til að fá sent söluyfirlit.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Örn Jóhannsson löggiltur fasteignasali / s.861 8827 / aevar@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Lýsing íbúðar:
Gengið er inn í forstofu með sérlega smekklegum hillum sem skilur hana frá alrýminu. Flæðandi parket er á allri íbúðinni fyrir utan votrýmin.
Eldhús hefur verið endurnýjað frá a-ö. Var tekið í gegn ásamt þvottahúsi af fagaðilum árið 2020.
Baðherbergi var endurnýjað af fyrri eiganda. Það er flísalagt í hólf og gólf, útbúið innfeldum spegli með halogen lýsingu, splúnkunýrri vaskinnréttingu, sturtuklefa, salerni og ágætu skápaplássi.
Stofan er stór og mjög björt. Rúmar vel borðstofuborð og sjónvarpskrók. Útgengi á stórar svalir sem eru nýmálaðar með epoxý.
Þrjú svefnherbergi:
Hjónaherbergi er parketlagt með skápa vegg. Gluggarnir eru nýjir og einn gólfsíður svo herbergið er bjart.
Hin herbergin tvö eru bæði parketlögð og björt með nýjum gluggum. Minna herbergið notast sem skrifstofa af eigendum.
Þvottahús er innan íbúðar í lokuðu rými inn af eldhúsi með tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Rúmlega 10 fm sérgeymsla er í kjallara og einnig sameiginlegar geymslur.
Auk þess er sameiginlegt hjóla- og vagnageymslurými, þurrkrými og óskráð rými.
Sameignin er mjög snyrtileg og stigagangur teppalagður.
Ytra byrði:
Eins og komið hefur fram var skipt um alla glugga á svefnherbergis álmu stigagangsins (og fleirri stigaganga).
Farið hefur verið í viðgerðir og viðhald á múr og málningu og er síðasti partur þeirrar framkvæmdar í gangi sem stendur og reiknað með verklokum í enda sumars.
Sá kostnaður sem fellur á íbúðina vegna þeirrar framkvæmdar greiðist að fullu af seljendum.
Þakið hefur nýlega verið yfirfarið, málað fyrir um 5-6 árum.
Sameiginlegur garður er einkar glæsilegur, útbúinn skemmtilegum leiktækjum fyrir börn og setubekk fyrir nestisaðstöðu.
Í göngufæri frá íþróttasvæði Leiknis, Breiðholtslaug og heilsurækt.
Stutt í frábær útivistarsvæði í Elliðaárdal og Víðidal.
Öll skólastig í næsta nágrenni.
Nálægt stofnbraut og er hverfið því svo gott sem nálægt öllu auk þess að vera mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Skammt frá Mjóddinni og allri þeirri þjónustu sem þar er, s.s. kvikmyndahús, snyrtistofa, matvöruverslun, apótek, bakarí o.fl.
Góð eign með góðum tækifærum.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. sep. 2020
35.800.000 kr.
38.000.000 kr.
100.3 m²
378.863 kr.
18. jan. 2012
16.400.000 kr.
17.500.000 kr.
100.3 m²
174.477 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025