Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
64,3 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Lyfta
Opið hús: 3. júní 2025
kl. 16:45
til 17:30
Opið hús: Jöfursbás 11, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 04 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. júní 2025 milli kl. 16:45 og kl. 17:30.
Lýsing
Lind fasteignasala og Arinbjörn Marinósson lgf kynna fjögura herbergja íbúð við sjávarsíðuna í Gufunesi nánar tiltekið í Jöfursbási 11. Íbúðin er á fjórðu hæð (402) með svalir sem vísa í vestur í fjölbýli sem var byggt árið 2021. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi ,stofu, eldhús og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
ÍBÚÐIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING.
*** ATH AÐEINS FYRIR FYRSTU KAUPENDUR Á ALDRINUM 18-40 ÁRA. EKKI HMS LÁN - HEIMILD ER FYRIR DÝRAHALDI ***
Allar nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson Löggiltur fasteignasali í síma 822-8574 eða á netfangið arinbjorn@fastlind.is.
Nánari lýsing eignarinnar:
Anddyri er flísalagt með skáp og fatahengi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu alrými með parket á gólfi. Í eldhúsi er Innrétting með tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn, helluborði og viftu. Út frá stofu er gengið út á svalir til vesturs.
Baðherbergið er með innréttingu, upphengdu salerni, "walk-in" sturtu", speglaskáp og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Vodafone og Dorma.
Sameiginleg hjólageymsla og þvottahús er á jarðhæð. Í sameign er einnig vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta leigt og pósthólfin á einum stað.
Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11.
Íbúðir Þorpsins vistfélags eru á sjávarlóð í nýju hverfi í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi.
Í Gufunesi verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar- og atburði, ferðamannaiðnað og sjálfbærar samgöngur. Gufunesið verður þannig einstakt hverfi í borginni þar sem iðnaðarmannvirki, manngert landslag, afþreying- og útivist og stórfengleg fjallasýn við sjávarsíðu mynda órjúfanlega heild.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. mar. 2021
17.000.000 kr.
36.494.000 kr.
64.3 m²
567.558 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025