Lýsing
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Hol er með flísum á gólfi og þar er skápur.
Stofa er með harðparketi á gólfi, stofan er rúmgóð og það er útgengt á nokkuð djúpar suðursvalir.
Eldhús er með plastparketi á gólfi, dökk innrétting með stálplötum á milli efri og neðri skápa.
Aðal svefnherbergi er með parketi á gólfi og skápum.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, upphengt wc, skúffur undir vask, skápur, opin sturta, handklæðaofn og þvottavél.
Þvottahús er í sameign á jarðhæð en eigendur eru með þvottavél á baðherbergi innan íbúðar.
Geymsla er í sameign á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð og nýverið var byggður rúmgóður pallur við útgang úr hjólageymslu á bakvið hús.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.