Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
89,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 18. júní 2025
kl. 17:15
til 17:45
Opið hús: Hafnarbraut 15, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 09. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. júní 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Björt og falleg 3ja herbergja íbúð með með svölum sem snúa til suð- vesturs og bílastæði í bílageymslu
- Skjólgóðar svalir og afgirtur garður
- Sér bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð
- Frábær staðsetning með BRIKK bakarí og veitingastað í sama húsi
Við kynnum til sölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annari hæð í glæsilegu húsi við Hafnarbraut á Kársnesinu. Íbúðin er björt og með gluggum til tveggja átta. Suð- vestursvalir snúa út í lokaðan garð sem nýtist bæði til útivistar og samveru. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð.
Fasteignamat 2026 verður 77.450.000 kr.
Nánari upplýsingar veita:
Tinna Bryde, A.lgf. | 660-5532 | tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Umsögn seljanda
"Við höfum átt yndisleg fimm ár hér á Hafnarbraut og það er með smá söknuði að við setjum heimilið okkar á sölu. Við erum fjölskylda með tvö börn – 5 ára og 1 árs – og þessi staður hefur reynst okkur ótrúlega vel. Strákurinn okkar hefur eignast góða vini hér í húsinu og leiksvæðið í afgirtum garðinum hefur verið mjög vinsæll. Það er eitthvað sérstaklega gott við að vita að börnin geti hlaupið út og leikið sér í öruggu umhverfi.
Við höfum líka notið þjónustunnar í húsinu til hins ítrasta – hvort sem það er nýbakað brauð og kanilsnúðar í Brikk á morgnana eða kvöldverður á Brasserí Kársnes. Það er mikill lúxus að hafa þetta allt við hendina. Að auki býður hverfið upp á frábærar göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir. Nú höfum við ákveðið að stækka við okkur og því er íbúðin okkar komin á sölu. Við vonum innilega að næstu íbúar njóti hennar jafn mikið og við höfum gert."
Nánari lýsing á íbúðinni:
Forstofa: Opin með fataskápum og parketi
Baðherbergi: Flísalagt með góðri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóð walk-in sturta og gólfhiti
Eldhús: Opið inn í stofu með dökkri innréttingu frá HTH, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á skjólgóðar svalir sem snúa til suð-vesturs.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum
Barnaherbergi: Með parketi og fataskáp
Geymsla: Sér geymsla í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu
Sérbílastæði í bílageymslu með hleðslustöð
Aðstaða og umhverfi:
Húsið er í hjarta Kársness – þar sem náttúra og þjónusta mætast. Í sama húsi er veitingastaðurinn Brasserí Kársnes, sem hefur notið mikilla vinsælda, og BRIKK bakarí þar sem hægt er að næla sér í nýbakað bakkelsi á hverjum degi. Gönguleiðir meðfram sjónum, smábátahöfn, leikskólar, grunnskólar og íþróttaaðstaða eru öll í næsta nágrenni.
Eignin hentar jafnt einstaklingum, pörum og litlum fjölskyldum sem vilja stílhreint og vel staðsett heimili.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. sep. 2020
45.850.000 kr.
52.400.000 kr.
89.4 m²
586.130 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025