Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1903
23,1 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg fm 23,1 fm íbúð í risi í litlu fjölbýlishúsi við Bergstaðastræti 45. Um er að ræða eitt af þessum fallegu gömlu timburhúsum í Þingholtunum. Íbúðin hefur verið töluvert standsett m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, herbergi/svefnkrók og baðherbergi. Sér geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús. Íbúðin er ósamþykkt. Fimm íbúðir eru í húsinu og er öll eignin til sölu. Eignin selst í hlutum eða í einu lagi.NÁNARI UPPL. VEITIR: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8611, magnea@eignamidlun.is
,
Nánari lýsing:
Stofa: Gólf er lagt nýlegum gólfborðum.
Herbergi/svefnkrókur: Svefnkrókur er innaf stofu. Nýleg gólfborð á gólfi. Svalir eru út af svefnkrók (sameiginlegar svalir með íbúð 03-02).
Eldhús: Gólf er flísalagt. Innrétting í eldhúsi hefur verið endurnýjuð. Lítill borðkrókur.
Baðherbergi: Setbaðkar með sturtu. Gólf er flísalagt. Gluggi er á baðherbergi.
Fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 36.100.000.
Framkvæmdir innanhúss: Íbúðin var mikið standsett í kringum árið 1995. Raflagnir í íbúðinni hafa nýlega verið endurnýjaðar svo og rafmagnstafla.
Framkvæmdir utanhúss: Járn utan á húsi og þaki var endurnýjað á s.l. 10 árum (verið er að setja nýtt járn á síðasta hluta hússins núna). Frárennslislangir hafa verið endurnýjaðar en það var gert í tvennu lagi. Árið 2010 voru frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar og árið 2024 voru frárennslislagnir frá húsi og út í götu endurnýjaðar. Gluggar/gler í íbúðinni var endurnýjað á s.l. 10 árum.
Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur. Örstutt í verslanir og helstu þjónustu. Útivistarsvæði í næsta nágrenni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. nóv. 2007
4.910.000 kr.
17.000.000 kr.
47.6 m²
357.143 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025