Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
88,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Betri Stofan og Jason Kristinn sími 7751515 kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Vetrarbraut 2-4, í nýju og heillandi hverfi við golfvöll GKG í Garðabæ. Íbúð 402 er 88,3 fermetra íbúð á fjórðu hæð, efstu hæð sem er með gólfhita. Steinn á borðplötum og loftskiptikerfi. Eigninni fylgja tvö bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt nr. B39 og B40. Lofthæðin er góð í íbúðinni. Fallegt útsýni. Tvennar svalir. 

http://www.vetrarbraut.is/

Nánari lýsing:
Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu og stofu í rúmgóðu og björtu alrými úr eldhúsi er gengið út á suðursvalir. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er rúmgott með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús er vel útbúið, sérsmíðaðar Voke III spónlagðar eikar innréttingar með innfelldum gripum, á borðplötum er kvartssteinn. Vönduð tæki eru í elhúsi innbyggður Siemens ísskápur og uppþvottavél. Gaggenau ofn í vinnuhæð, helluborð með innbyggðri viftu, eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð.
Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.

Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti.
Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Um er að ræða bjartar og fallegar íbúðir í vandaðri nýbyggingu í einstöku umhverfi, nálægð við Golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur, nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar svo fátt sé upptalið í skemmtilegu nýju hverfi. Með öllum íbúðum fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu í það minnsta eitt fyrir hverja íbúð og fylgja bílskúrar sumum íbúðum að auki.  
Vandað hefur verið að allri hönnun innan sem utan.
Byggingar eru hannaðar af Arkís, aðalhönnuður er Arnar Þór Jónsson arkitekt og hafði Thelma Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt umsjón með innanhúshönnun. Hverfið í  heild, Vetrarmýri, er hannað af Sigurði Einarssyni arkitekt og skipulagshönnuði hjá Batteríinu.

***Ljósyndir eru úr sýningaríbúð 4. hæðar, íbúð 412***

Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Dagrún Davíðsdóttir, í síma 866-1763, tölupóstur dagrun@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík