Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
svg

109

svg

87  Skoðendur

svg

Skráð  19. jún. 2025

fjölbýlishús

Jöfursbás 11

112 Reykjavík

50.515.930 kr.

911.840 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516688

Fasteignamat

49.600.000 kr.

Brunabótamat

36.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
55,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Sunna fasteignasala ehf. og Jasmín Erla Ingadóttir, lögg. fasteignasali, kynna eignina Jöfursbás 11b, 112 Reykjavík.
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi við Jöfursbás 11b í Gufuneshverfi, Grafarvogi.
Íbúðin er skráð 55,4 fm og er hluti af nýlegu fjölbýlishúsi byggðu árið 2022. Um er að ræða bjarta og glæsilega íbúð með stuttri leið í náttúruna.
✔ Frábær eign fyrir fyrstu kaupendur
✔ Gæludýrahald er leyft
✔ Kaupendur á aldrinum 18–40 ára njóta forgangs (samkvæmt kvöð á eign)
✔ Glæsilegt umhverfi við sjávarsíðuna í Gufunesi

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Eldhús og stofa eru í björtu og opnu alrými með parketi á gólfum.
Í eldhúsinu er falleg hvít innrétting með helluborði, viftu, bakarofni og tengi fyrir uppþvottavél. Úr stofu er gengið út á svalir. 
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtu, hvítum innréttingum, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi 1 og 2 eru bæði með fataskápum og parketi á gólfum.

Sameign og aðstaða:
Á jarðhæð í blokk D er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, snyrtilegt þvottahús og pósthús.
Íbúar hafa einnig aðgang að sameiginlegum veislusal/vinnurými sem hægt er að leigja.
Matjurtagarðar í umsjón Reykjavíkurborgar eru í boði fyrir íbúa. Þar verður heimilt að rækta í vermireitum eða gróðurskýlum (20 eða 40 fm að stærð).

Um hverfið:
Jöfursbás 11 stendur á sjávarlóð í hinu nýja og uppbyggilega Gufuneshverfi.
Svæðið einkennist af blandaðri byggð, grænum svæðum og göngu- og hjólastígum sem tengjast eldri hverfum Grafarvogs.
Leik- og dvalarsvæði eru í skjóli innan húsalóðarinnar og torg við inngang hússins nýtist sem miðlægt samkomusvæði.
Gufunes verður framtíðarhverfi þar sem sjálfbærar samgöngur, menning, skapandi iðnaður og fjölbreytt afþreying mynda líflega heild í einstöku sjávarumhverfi.

Nánari upplýsingar veitir Jasmín Erla Ingadóttir, lfs. í síma 772-6979, og netfanginu jasmin@sunnafast.is.
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. maí. 2022
16.400.000 kr.
35.597.000 kr.
55.4 m²
642.545 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík