Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
svg

305

svg

229  Skoðendur

svg

Skráð  19. jún. 2025

fjölbýlishús

Tjarnarlundur 12e

600 Akureyri

47.900.000 kr.

631.926 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151237

Fasteignamat

38.000.000 kr.

Brunabótamat

40.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
75,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
 

Tjarnarlundur 12e - Vel skipulögð og töluvert endurnýjuð 3ja-4ra herbergja íbúð í fjölbýli á góðum stað í Lundahverfi - stærð 75.8 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign.

Upprunalega var eignin 3ja herbergja, en eldhúsinnrétting hefur verið færð inn í stofu og gert auka svefnherbergi þar sem eldhúsið var áður.

Forstofan með dúk á gólfi og þar er fataskápur og opið fatahengi. 
Eldhúsið og stofan eru í opnu rými. Eldhúsið er með dúk á gólfinu, ljósri L-laga innréttingu með dökkri bekkplötu, efri hornskáð og stæði fyrir uppþvottavél.
Stofan er með dúk á gólfi og þaðan er gengið út á flísalagðar vestur svalir með góðu útsýni.  
Svefnherbergin eru þrjú, í einu þeirra er rúmgóður fataskápur. Harðparket er á gólfi í herbergi þar sem eldhúsið var, í hinum er dúkur á gólfi.
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi, ljósri innréttingu, speglaskáp, walk-in sturtu, wc og handklæðaofni. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. 

Annað: 
- Nýlegur mynddyrasími er í stigaganginum 
- Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA sem og aðra þjónustu. 
- Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð
- Húsið málað að utan og múrviðgert 2021
- Gler og listar endurnýjað í íbúð og stigagang  
- Baðherbergi og eldhús hefur verið endurnýjað
 
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. apr. 2024
38.200.000 kr.
41.000.000 kr.
75.8 m²
540.897 kr.
26. maí. 2023
31.350.000 kr.
36.500.000 kr.
75.8 m²
481.530 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone