Opið hús: Norðurbyggð 8, 815 Þorlákshöfn. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða gott og vel skipulagt 5 herbergja miðjuraðhús með rúmgóðum bílskúr. Birt stærð eignar er 167.9 fm þar af er íbúðarhluti 125.4 fm og bílskúr 42.5 fm. Húsið er staðsett í rólegri botngötu og stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð / sundlaug og verslanir.
HÚSIÐ ER LAUST TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, hol / gangur, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr / þvottahús / geymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott anddyri, fataskápur, flísar á gólfi. Búið er að stækka anddyrið með því að fjarlægja gestasalerni. Auðvelt er að breyta því til baka.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð, úr stofu er útgengt út á hellulagðan suður sólpall á baklóð, stofuskápur í stofu getur fylgt með, parketi á gólfi.
Eldhús: Með hvítri innrétting, eldavél, ísskápur og uppþvottavél fylgja með, búið er að opna eldhúsið inn í stofu, innangengt í bílskúr, parket á gólfi.
Hol / gangur: Fataskápar, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, viðarlitaðir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Gott svefnherbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott, góð viðarinnrétting, handklæðaofn, baðker með sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr / þvottahús / geymsla: Rúmgóður 42,5 fm. bílskúr, gönguhurðir út í innkeyrslu og út á baklóð, gryfja er í skúrnum sem er ca. 1,80 cm á hæð, ómálað gólf. Þvottaaðstaða er staðsett í bílskúrnum og geymsla í enda bílskúrs.
Húsið: Er steypt og byggt árið 1989. Húsið þarfnast viðhalds og að utan. Búið er að skipta um gler á suðurhlið hússins (ekki bílskúr). Ekki er húsfélag í húsunum.
Húsinu verður skilað ný naglhreinsuðu að innan og spörsluðu. Settir verða gólflistar þar sem þeir eru ekki.
Lóð: Framan við húsið er malbikuð innkeyrsla, garður með hellulagðri verönd og trjábeði, rampur er framan við húsið og gott hjólastólaaðgengi er í húsinu. Á baklóð er suður sólpallur og gras.
Staðsetning: Smellið hér.
Hér er um að ræða góða og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.