Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Bjarmastígur 9 neðri hæð

600 Akureyri

77.900.000 kr.

460.130 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145272

Fasteignamat

59.950.000 kr.

Brunabótamat

69.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1933
svg
169,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 25. júní 2025 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Bjarmastígur 9 - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja neðri hæð með sér inngangi í tvíbýlishúsi rétt fyrir ofan miðbæinn - stærð 169,3 m² en þar af er íbúð á hæð 118,2 m²

 * Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega og innbú getur selst með * 

Eignin skiptist í forstofu, geymslu, hol, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og stofu. Í kjallaranum eru fjórar sér geymslur og sameiginlegt þvottahús. 

Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu er gengið inn á rúmgott hol með harð parketi á gólfi og viðar þiljum á hluta veggja. 
Eldhús, ljós máluð innrétting með flísum á milli skápa. Nýleg vifta. Harð parket á gólfi og gólfihiti. Gengið er í gegnum eldhúsið og inn í sameiginlega stigagang til að fara niður í kjallara. 
Stofa er með harð parketi á gólfi, gólfhita og gluggum til tveggja átta. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll frekar rúmgóð, með ljósi harð parketi á gólfi og gólfhita. Stór sprautulakkaður fataskápur er í hjónaherberginu. 
Baðherbergi var endurnýjað árið 2023. Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting, upphengt wc, walk-in sturta og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél.
Lítil geymsla er á hæðinni til hliðar úr forstofunni, þar er ekki full lofthæð. 

Sameiginlegt þvottahús er í kjallaranum með lökkuðu gólfi. 
Fjórar sér geymslur eru í kjallaranum, tvær rúmgóðar, um 13 m² og 20 m² að stærð og báðar með opnanlegum gluggum. Vinnurborð og hillur eru í annarri af stærri geymslunum. 

Annað
- Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2021
- Eignin var mikið endurnýjuð árið 2023, lagður gólfhiti í alla hæðina fyrir utan geymslu, nýtt harð parket lagt á helstu rými og flísar á forstofu og baðherbergi og nýjar hvítar innihurðar.
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla á hæðinni og draga nýjar lagnir í hluta. 
- Tröppur heim að húsi voru endurnýjaðar árið 2024. 
- Geymslur í kjallara og sameign í kjallara var málað árið 2024.
- Búið er að taka inn ljósleiðara. 
- Fyrirhugað fasteignamat eignar fyrir árið 2026 er kr. 65.200.000.-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. okt. 2023
46.650.000 kr.
10.500.000 kr.
165.8 m²
63.329 kr.
31. júl. 2020
33.600.000 kr.
31.000.000 kr.
165.8 m²
186.972 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone