Lýsing
Miklaborg kynnir: Tveggja herbergja íbúð með sérinngang, þvottahús innan íbúðar og suður svalir á frábærum stað við Vallengi 4 í Grafarvogi. Fjölbýlishúsið var byggt árið 1997 og er íbúðin skráð 70 fm þar af 1.6 fm geymsla. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla (Engjaborg og Hamrar), grunnskóla (Engjaskóla og Víkurskóla) og framhaldsskóla (Borgarholtsskóla).
Gengið er inn um sérinngang af opnum svölum á annarri hæð.
Anddyri: Gott skápapláss. Flísar á gólfi.
Eldhús: Ljós innrétting. Dúkur á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi. Útgengt á suður svalir.
Svefnherbergi: Gott skápapláss. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sturta og baðkar.
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vastur og hillupláss.
Geymsla: 1.6fm, á jarðhæð.
Vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:
Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is