ÍBÚÐ 301 (HARALDUR Á BJÖLLU). Sveinn Eyland lögg.fasteignasali á staðnum.
Lýsing
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða fimm herbergja 144.1 fm íbúð á þriðju hæð í sex íbúða fjölbýlishúsi að Gullengi 15.
Íbúð er með gluggum á þrjá vegu og er nokkuð björt og fallegt útsýni úr íbúð.
Mjög stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði.
ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 111.5 fm merkt 01-03-01, geymsla er 3.6 fm merkt 01-01-05 samtals 115.1 fm að stærð og bílskúr er 29 fm merkt 01-01-01.
Heildarstærð eignar er 144.1 fm.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 7700 309 eða th@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu/borðstofu, sjónvarpsstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar, sérgeymslu á jarðhæð og bílskúr á plani framan við hús.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa með innbyggðum fataskápum.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með útgengi á suð-austur svalir.
Sjónvarpsstofa er innaf stofurými.
Þrjú góð svefnherbergi sem að eru öll með fataskápum.
Eldhús er snyrtilegt með góðri innréttingu með efri og neðri skápum, flísar á vegg á milli efri og neðri skápa, uppþvottavél og ísskápur sem er í innréttingu fylgir með í kaupum, borðkrókur er í framhaldi af eldhúsinnréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú nokkuð rúmgóð og eru fataskápar í öllum þrem herbergjunum.
Baðherbergi er snyrtilegt með flísum á gólfum og veggjum, Walk-in sturtuklefi, ágætis innrétting með skúffum undir vask, handklæðaofn og vegghengt salerni.
Þvottaherbergi er innan íbúðar með ágætis innréttingu og vinnuborði.
Sérgeymsla er á jarðhæð.
Bílskúr er í enda bílskúrslengju á lóðinni og er góð lofthæð í bílskúr þar sem að búið er að koma fyrir geymslu/millilofti yfir helming af bílskúr.
Gólfefni; Harðparket og flísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat