Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skipalón 27

220 Hafnarfjörður

93.900.000 kr.

774.114 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2301401

Fasteignamat

79.400.000 kr.

Brunabótamat

64.920.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
121,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 2. júlí 2025 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Skipalón 27, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. júlí 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Heimili Fasteignasala kynnir glæsilega, bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja endaíbúð á jarðhæð, með sérinngangi og stæði í lokaðri bílageymslu, í vönduðu fjölbýli að Skipalóni 27 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 121,3 m2 að þar af íbúðarrými 111,3 m2 og geymsla 10 m2, og skiptist í anddyri, hol/skála, eldhús, borð- og setustofu, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús í sér rými innan íbúðar auk fyrrgreindrar geymslu og stæðis í lokaðri bílageymslu. Frá stofu er útgengi í garð/verönd eignar þar sem er skjólgóður pallur. 

Nánari lýsing.
Anddyri: Sérinngangur, falleg forstofa með góðum fataskápum. Á gólfi eru flísar.
Eldhús: Bjart og fallegt með vandaðri innréttingu með Quartz borðplötu, ofn í vinnuhæð, góðri vinnuaðstöðu og eyju. Í eldhúsi eru gluggar á tvo vegu og á gólfi eru flísar.
Borð- og setustofa: í opnu rými með eldhúsinu, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu og frá stofu er útgengi á sérafnotareit eignar í suð-vestur þar sem er verönd/pallur og skjólgirðing. 
Barnaherbergi: Fataskápur innan herbergis, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu.
Barnaherbergi: Fataskápur innan herbergis, parket á gólfi, gluggi til suð-vesturs.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Á gólfi er parket. 
Baðherbergi: Vönduð (filmuð) innrétting, baðkar með sturtaðstöðu, vegghengt WC, gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Þvottahús: Nýleg innrétting, ágæt vinnuaðstaða, vaskur og efri skápar. Á gólfi eru flísar. 

Í sameign er rúmgóð sérgeymsla íbúðar, sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sér stæði íbúðar í lokaðri bílageymslu þar sem er tengi fyrir hleðslustöð.

Húsið er klætt að utan, og því viðhaldslétt, og er staðsett í enda botnlanga þar sem er leiksvæði fyrir framan hús og nægur fjöldi bílastæða.

Falleg og vel skipulögð eign sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, brynjolfur@heimili.is.

 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2021
52.700.000 kr.
70.900.000 kr.
121.3 m²
584.501 kr.
29. mar. 2017
36.150.000 kr.
47.900.000 kr.
121.3 m²
394.889 kr.
30. apr. 2008
29.145.000 kr.
29.600.000 kr.
121.3 m²
244.023 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík