Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
svg

1090

svg

699  Skoðendur

svg

Skráð  2. júl. 2025

einbýlishús

Hverafold 64

112 Reykjavík

120.000.000 kr.

845.666 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2042324

Fasteignamat

103.650.000 kr.

Brunabótamat

72.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1987
svg
141,9 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 6. júlí 2025 kl. 16:00 til 16:30

Opið hús: Hverafold 64, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 6. júlí 2025 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Opið hús - Hverafold 64 Reykjavík - sunnudaginn 6. júlí klukkan 16:00 - 16:30

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallegt, bjart og vel skipulagt 141,9 fermetra einbýlishús við Hverafold 64 í Reykjavík. Eignin skiptist í 108,9 fermetra íbúðarrými og 33,0 fermetra bílskúr sem er með baðherbergi inn af og því hægt að nýta bílskúr sem útleigueiningu. Útgengi úr stofu á sólríka verönd til suðvesturs sem er afgirt að hluta. Falleg heimreið að húsi sem er hellulögð. Góður tyrfður garður með fallegum trjágróðri. Húsið sjálft og þak var málað árið 2024.

Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Bílskúr er rúmgóður með geymslu við bílskúrshurð og inngangshurð sem leiðir inn í herbergi með glugga og baðherbergi inn af herbergi.

Staðsetning eignarinnar er afar góð í lokuðum botnlanga á eftirsóknaverðum stað við Hverafold þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði auk verslunar og þjónustu. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Virkilega skjólsætt er á þessari staðsetningu í Grafarvogi og stutt í afar falleg útivistarsvæði við Voginn.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Útgengi á baklóð/verönd frá stofu.
Verönd: Er hellulögð og afgirt að hluta. Við tekur falleg tyrfð lóð með gróðri á lóðarmörkum.
Eldhús: Með parketi á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Eldavél með keramik helluborði, gluggum til austurs og góðum borðkrók.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi. Þvottaherbergi er staðsett inn af eldhúsi og með útgengi á framlóð. Gluggar til suðurs.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta (þarf að endurnýja). Innrétting við vask, salerni og gluggi til austurs.

Bílskúr: Er 33,0 fermetrar að stærð. Plastparket á hluta þar sem inngangshurð er inn í herbergi og baðherbergi. Gluggi til norðurs. Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni, vaski og handklæðaofni. Væri hægt að koma fyrir litlum eldhúskróki við hlið baðherbergis. 
Geymsa: Er staðsettur í hluta bílskúrs þar sem bílskúrshurð er. Málað gólf, vinnuborð og hillur.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur