Opið hús: Dverghamrar 13, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 18. ágúst 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 184,9 fm. þar af er bílskúr 45,5 fm. Lóðin er 877,0 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 133.850.000 kr.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út í garð.
Eldhús er með upprunalegum innnréttingum, góður eldhúskrókur, parket á gólfi.
Þvottahús innaf eldhúsi með glugga og útgengt út í garð. Innaf þvottahúsinu er geymsla.
Hol með parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er innaf andyri, parket á gólfi.
Svefnherbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, baðkar og sturtuklefi, upphengt salerni, snyrtileg innrétting og gluggi. Flísar í hólf og gólf.
Bílskúr er tvöfaldur með rafmagn, hitaveitu og heitt og kalt vatn.
Frábær staðsetning innst í botnlanga og því mjög rólegt. Stutt í helstu þjónustu, leik- og grunnskóla.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal löggiltur fasteignasali í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.