Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hólabraut 3

220 Hafnarfjörður

58.900.000 kr.

664.786 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075766

Fasteignamat

53.750.000 kr.

Brunabótamat

51.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
88,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja endaíbúð, með gluggum á þrjá vegu, á fyrstu hæð í húsi byggðu árið 1980 að Hólabraut 3 í 220 Hafnarfirði. Eignin er skráð 88,6 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 79,4 m2 og geymsla 9,2 m2 (merkt 0001) og skiptist í anddyri/skála, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og borð- og setustofu með útgengi á skjólgóðar suður svalir.  Vel skipulögð íbúð í grónu hverfi. 

Nánari lýsing.

Forstofa: Rúmgóð og snyrtileg með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús: Stór og góð innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða og rúmgóður borðkrókur. Á gólfi eru flísar og í eldhúsi er gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa: Björt og rúmgóð með gluggum á tvo vegu, parketi á gólfi og útgengi á skjólgóðar suðursvalir eignar. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott með stórum fataskápum og glugga með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskáp, glugga opnanlegu fagi og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: Falleg nýleg innrétting, ágætt skápapláss, sturtuklefi og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Þvottahús: Er sameiginlegt og staðsett við hlið íbúðar. Þar er góð vinnuaðstaða og gluggi með opnanlegu fagi. 

Í kjallara húseignarinnar sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þurrkherbergi og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og á bak við hús er sameiginlegur garður og leikvöllur.

Samkvæmt upplýsingum frá seljanda voru þakrennur húseignar endurnýjaðar árið 2021. Árið 2022 var húsið múr-, steypuviðgert og málað og árið 2024 var þakið endurnýjað að hluta (járn, pappi og borðaklæðning eftir þörfum).
 
Vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, falleg útivistarsvæði og miðbæ Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. ágú. 2020
33.450.000 kr.
36.500.000 kr.
88.6 m²
411.964 kr.
26. mar. 2014
17.400.000 kr.
22.300.000 kr.
88.6 m²
251.693 kr.
11. sep. 2007
17.100.000 kr.
18.800.000 kr.
88.6 m²
212.190 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík