Lýsing
Miklaborg kynnir: Blásalir 14, 201 Kópavogur. Mjög góð neðri hæð, 3ja herbergja íbúð í 4-býli með verönd, samtals 97 FM - sérinngangur. Parket og flísar á gólfum. Sér geymsla við hliðinni á íbúðinni. Rótgróið hverfi þar sem stutt er í margvíslega þjónustu: skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttir, verslanir sem og aðra þjónustu. Íbúðin er tóm og ný máluð og laus við kaupsamning.
Velkomið að panta tíma fyrir skoðun.
Nánari lýsing: Gengið upp steyptar tröppur. Sérinngangur. Forstofa, fataskápar og forstofuhurð. Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými. Útgengt þaðan á góða verönd með útsýni til suðurs. Tvö svefnherbergi, fataskápar í báðum. Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, innréttingu og glugga. Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og glugga. Í heildina góð íbúð með góðu innra skipulagi á eftirsóknarverðum stað innst í götunni.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.