Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
52 m²
1 herb.
1 baðherb.
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 29. september 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Laugavegur 27b, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 18. Eignin verður sýnd mánudaginn 29. september 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, s. 8998815, kari@eignamidlun.is
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Frábær stúdíóíbúð á 2. hæð í nýlegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Vestur svalir. Vinsæl staðsetning. Íbúðin er laus til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning. Gólfhiti.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 318 við Laugaveg 27b, 101 Reykjavík, F2506407. Stúdíóíbúð á 2. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 52 fm, þar af er íbúðarrými 47,8 fm og sérgeymsla er 4,2 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, opið eldhús og stofu í alrými, svefnrými í horni alrýmis, gott baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í kjallara. Vestur svalir út frá stofu. Fasteignamat eignar 2026 = 59.150.000 kr. Húsið er byggt 2019 af Þingvangi. Seljandi er fyrsti eigandi íbúðarinnar og flutti inn í íbúðina 2021. Húsið er bakhús á milli Laugavegs og Hverfisgötu. Aðgengi er bæði frá Laugavegi og um opinn stigagang frá Hverfisgötu.
*** Sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Anddyri, parket á gólfi og góðir fataskápar.
Eldhús er opið með fallegri Arens innréttingu ljósum neðri skápum og dökkum efri skápum. Innbyggð eldhústæki frá AEG fylgja með. Parket á gólfi.
Stofa er í opnu alrými með með eldhúsinu. Parket á gólfi. Útgengt er á vestursvalir.
Svefnrými er í horni alrýmis. Parket á gólfi.
Baðherbergi er mjög huggulegt með snyrtilegri innréttingu og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Stór sturtuklefi með rennihurð. Upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf.
Sér geymsla sem tilheyrir íbúðinni er í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins.
Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Gólfhiti er í öllum rýmum. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina.
Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. jan. 2021
41.300.000 kr.
37.000.000 kr.
52 m²
711.538 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025