Lýsing
NÚPALIND 6 – RÚMGÓÐ OG BJÖRT ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ Í VINSÆLU HVERFI Í KÓPAVOGI
Falleg og vel skipulögð 99,2 fm íbúð á 2. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi við Núpalind 6 í Kópavogi. Eignin er með tveimur svefnherbergjum en auk þess er sjónvarpshol sem gæti líka nýst sem vinnuaðstaða. Íbúðin hefur gott innra skipulag, flísalagðar svalir með svalalokun. Eignin fæst afhent fljótlega.
✅ Góð þriggja herbergja íbúð miðsvæðis í Kópavogi
✅ Baðherbergi aðherbergi með bæði sturtu og baðkari
✅ Þvottahús innan íbúðar og sérgeymsla í sameign
✅ Svalir með svalalokun og fallegu útsýni úr íbúð
Íbúðin skiptist í anddyri, þvottahús, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, stofu og eldhús með borðkrók.
Nánari lýsing
Anddyri: Flísalagt með fataskáp.
Eldhús: Ljós upprunaleg innrétting, bakaraofn, keramik helluborð, gufugleypir og tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur við glugga. Harðparket á gólfi.
Stofa og sjónvarpshol: Björt og rúmgóð rými með harðparketi.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sturtuklefa, salerni og baðinnréttingu.
Þvottahús: Flísalagt með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Flísalagðar með svalalokun – skjólgott rými með útsýni.
Geymsla og sameign: Sérgeymsla í sameign auk hjóla- og vagnageymslu.
Staðsetning:
Núpalind 6 er staðsett í r vinsælu hverfi í Kópavogi þaðan sem stutt í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu.
Fasteignamat 2026: 74.850.000 kr.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat