Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingileifur Einarsson
Vista
svg

88

svg

71  Skoðendur

svg

Skráð  26. sep. 2025

fjölbýlishús

Gulaþing 32

203 Kópavogur

119.900.000 kr.

686.319 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2307878

Fasteignamat

95.750.000 kr.

Brunabótamat

85.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
174,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. september 2025 kl. 17:00 til 17:30

OPIÐ HÚS þriðjudaginn 30. september frá klukkan 17:00-17:30 að Gulaþingi 32, neðri hæð. Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511.

Lýsing

ÁSBYRGI FASTEIGNASALA EHF., INGILEIFUR EINARSSON, LÖGG. FASTEIGNASALI, GSM 894-1448, ingileifur@asbyrgi.is, ER MEÐ Í SÖLU VEL SKIPULAGÐA OG RÚMGÓÐA 3JA HERBERGJA NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉRINNGANGI OG BÍLSKÚR VIÐ GULAÞING 32 Í KÓPAVOGI.
Vel skipulögð og rúmgóð 3ja herbergja neðri hæð með sérinngangi og bílskúr við Gulaþing 32 í Kópavogi.
Samkvæmt HMS er íbúð með sérgeymslu skráð 132,5 fm. og bílskúr 42,2 fm. Samtals er eignin því skráð 174,7 fm. 
Afgirt timburverönd til suðurs og rúmgóðar svalir til norðurs sem heimilt væri að loka. 
Að utan er húsið álklætt og því um nánast viðhaldsfrítt hús að ræða.
Stórglæsilegt útsýni úr íbúð yfir Elliðavatn í átt að Esjunni, Skálafell og víðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511.

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og hvítum innbyggðum fataskápum. Gólfhiti er í forstofu.
Eldhús er opið inn í borðstofu og stofu með parketi á gólfi, snyrtilegri eldhúsinnréttingu með granít borðplötu (möguleiki á að setja helluborð í eyju) og innbyggðri uppþvottavél. Veggfastur skenkur í framhaldi af eldhúsinnréttingu.
Borðstofa og stofa er björt með parketi á gólfi og glæsilegu útsýni. Úr borðstofu er gengið út á flísalagðar svalir til norðurs.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Það er gengið út á skjólgóða, afgirta timburverönd til suðurs. 
Barnaherbergi er einnig rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi með fallegum flísum á gólfi og veggjum, baðkari, sturtuklefa, innbyggðum blöndunartækjum og handklæðaofni. Gólfhiti er á baðherbergi.
Þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu undir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og handklæðaofni. Gólfhiti er í þvottaherbergi.
Innbyggður bílskúr á jarðhæð undir íbúð (42,2 fm.).
Sérgeymsla er inn af bílskúr (11,8 fm.).
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Árið 2020/2021:
- Gólfefni endurnýjuð, olíuborið eikarparket og flísar á gólfum.
- Innihurðir endurnýjaðar.
- Baðherbergi endurnýjað.
- Eldhúsinnrétting sprautulökkuð.
- Gólfhiti lagður í forstofu.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun, sjá kauptilboð.

Ásbyrgi

Ásbyrgi

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jún. 2020
59.400.000 kr.
70.000.000 kr.
174.7 m²
400.687 kr.
9. maí. 2018
50.600.000 kr.
58.700.000 kr.
174.7 m²
336.005 kr.
22. des. 2014
40.250.000 kr.
40.000.000 kr.
174.7 m²
228.964 kr.
18. jún. 2009
20.850.000 kr.
32.000.000 kr.
174.7 m²
183.171 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Ásbyrgi

Ásbyrgi

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
phone