Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1952
svg
167,3 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Garður
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
svg
Svalir

Lýsing

Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Álfhólsveg 56, 200 Kópavogi.

Fimm herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr og stórum skjólgóðum garði. Smellið hér fyrir staðsetningu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.

Álfhólsvegur 56, einbýlishús 139,6m² og bílskúr 27,7m² samtals 167,3m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag jarðhæðar: forstofa, alrými með eldhúsi og borðstofu, stofa, herbergi, baðherbergi og þvottahús.

Komið er inn í flísalagða forstofu þaðan sem gengið er í önnur rými hússins og stigi liggur upp á rishæð.

Stofa, parket á gólfi. Við hlið stofu er herbergi I sem í dag er nýtt sem dagstofa.

Alrými með eldhúsi og borðstofu. Útgengt er út á pall frá borðstofuhluta.

Eldhús, hvít innrétting með fulningum, stálvaskur, helluborð, vifta, ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.

Salerni, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og vaskur.

Þvottahús, flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, stálvaskur, gluggi.

Skipulag rishæðar: gangur, fjögur herbergi og baðherbergi.

Komið er upp á gang sem tengir önnur rými hæðarinnar. Lúga upp á háaloft.

Herbergi II, hjónaherbergi: sexfaldur fataskápur, parket á gólfi og geymsla undir súð.

Herbergi III með parket á gólfi og geymslurými undir súð. Útgengt út á svalir.

Herbergi IV og V með parket á gólfi og geymslurými undir súð.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtufestingu, vaskinnrétting, standandi salerni og glugga.

Bílskúr: málað gólf, innkeyrsluhurð, gönguhurð og gluggar. Snjóbræðsla í hellulögn fyrir framan skúr.

Garður er stór, skjólgóður og gróinn með palli og geymsluskúr.

Myndavélakerfi utanhúss og þjófavarnarkerfi fylgja húsinu.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. feb. 2015
41.450.000 kr.
47.000.000 kr.
167.3 m²
280.932 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík