Opið hús: Digranesvegur 75, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd sunnudaginn 16. nóvember 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Þessi eign var seld en fjármögnun hefur ekki gengið eftir og því er hún komin aftur í sölu en seljendur eignarinnar hafa tryggt sér aðra eign og geta fengið hana afhenta við kaupsamning og því væri hægt að afhenda húsið við kaupsamning, nái þau að halda þeirri eign sem þau hafa engið samþykkt tilboð í.
Húsið er skráð 150,8 fm og er bílskúrinn 26,8 fm þar af samkvæmt HMS.
Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á flíslagt anddyri með fatahengi.
Eldhúsið er með snyrtilegri nýlegri hvítri innréttingu og parketlagt gólf. Í eldhúsi hefur verið tekinn niður veggur sem bíður upp á að stækka eldhúsið, byggja utan um tvöfaldan ísskáp, setja tækaskáp og fleira. Hægt er að bæta við baðherbergi fyrir nýjan eiganda inn af þvottahúsi en þar er búið að koma fyrir lögnum fyrir sturtu salerni og handlaug.
Inn af þvottahúsinu er herbergi sem nýtt er sem vinnuherbergi í dag.
Þvottahúsið er rúmgott og hægt að breyta því af nýjum eiganda.
Stofan og borðstofan eru bjartar og rúmgóðar, parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú og er svefnherbergja gangur til hægri frá anddyri og stofur til vinstri. Hjónaherbergið er með stórum og rúmgóðum nýjum fataskáp. Parket er á gólfi herbergja.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari og sturtuklefa. Ný innrétting og nýtt salerni eru á baðherberginu.
Stórt og rúmgott geymslurými er yfir stórum hluta hússins á háalofti.
Bílskúrinn er með fjarstýrðri hurðaropnun.
Aftan við húsið er góður geymsluskúr sem er ekki inn í fermetratölu hússins en er um 12 fm að stærð. Hann er á steyptri plötu.
Bílastæði fyrir framan bílskúrinn og við húsið er óvenju stórt og rúmgott en bílskúrinn stendur aftarlega í lóðinni og er löng aðkeyrsla að honum þar sem hægt er að leggja mörgum bílum, og geyma hjól- eða fellihýsi.
Lóðin er vel gróin fallegum gróðri og fyrir framan húsið er skjólveggur og hellulagður pallur.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað af núverandi eigendum, meða annars er allar raflagnir og rofar nýjir, nýtt parket, ný eldhúsinnrétting, búið að skipta út frárennslis- og skólplögnum, neysluvatnslagnir eru nýjar, allar innihurðir eru nýjar og hefur baðherbergið verið endurnýjað. Jafnframt eru fataskápar nýir.
Hér er á ferðinni afar vel skipulagt og fallegt einbýli á einni hæð með þrem svefnherbergjum, skjólsælum garði og á góðum stað í þessu vinsæla hverfi. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á póstfangið hallgrimur@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.