Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Andrésbrunnur 5

113 Reykjavík

62.000.000 kr.

892.086 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2262730

Fasteignamat

51.250.000 kr.

Brunabótamat

35.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
69,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í lyftuhúsi við Andrésbrunn 5 í Grafarholti í Reykjavík. Eignin er skráð 69,5 m2, þar af íbúð 62,9 m2 og geymsla 6,6 m2. Íbúðin skiptist i forstofu/gang, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign á 1. hæð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara. Um er að ræða vel skipulagða eign með rúmgóðum svölum til suðurs í snyrtilegu lyftuhúsi í Grafarholtinu. Frábær staðsetning þar sem stutt er í verslanir, skóla og alla helstu þjónustu. Eignin er steinsnar frá vinsælum útivistarsvæðum við Reynisvatn, Úlfarsárdal og Hólmsheiði.

Endurbætur samkvæmt seljanda: Þak endurnýjað 2025. Ný svalahurð og gluggar. Ný og vönduð gólfefni frá Parki Interiors. Parket í stofu, eldhúsi og svefnherbergi. Flísar í forstofu/gangi, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Nýjar innihurðir frá Parki Interiors. Í eldhúsi er nýtt helluborð, ný blöndunartæki og nýr vaskur ásamt nýjum flísum milli efri og neðri skápa í innréttingu. Ný blöndunartæki við baðkar á baðherbergi. Íbúðin er nýmáluð.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent.

Nánari lýsing:
Forstofa/gangur er með flísum á gólfi og góðum forstofuskáp. Gólfhiti er í rýminu.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir til suðurs úr rýminu.
Eldhús er með flísum á gólfi, innréttingu með vask, bakaraofni, helluborði og viftu. Nýjar flísar eru milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskáp við hlið innréttingar. Hiti er í gólfi að hluta.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, góðri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Hiti er í gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar, rúmgott, með flísum á gólfi og plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign á 1. hæð og er skráð 6,6 fermetrar. Flísar eru á gólfi. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.

Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 56.950.000 kr.
Verð kr. 62.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Steingrímur Benediktsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Steingrímur Benediktsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. maí. 2010
15.600.000 kr.
18.919.000 kr.
69.5 m²
272.216 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Steingrímur Benediktsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ