Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Vista
svg

318

svg

264  Skoðendur

svg

Skráð  18. okt. 2025

fjölbýlishús

Sólheimar 23

104 Reykjavík

67.900.000 kr.

799.764 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021537

Fasteignamat

61.700.000 kr.

Brunabótamat

39.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1961
svg
84,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna: 

Þriggja herbergja íbúð á fimmtu hæð (504), með fallegu útsýni, í lyftuhúsi með stórum suðursvölum.

Fasteignamat 2026 verður 67.700.000 kr.

Íbúðin getur verið afhent við kaupsamning eftir 10.nóvember.

Eignin er verkelýðsfélagsíbúð og fylgir með henni tölvert innbú, kjósi kaupandi það.

Starfandi húsvörður í húsinu sem býr í íbúð sem er í eigu húsfélags, íbúð 104.

Helstu upplýsingar:
*Stærð íbúðar er 84,9 fm.
*Tvær lyftur.
*Tvö svefnherbergi.
*Baðherbergi með baðkari (sturta upp í baðkarinu).
*Stórar svalir til suðurs.
*Geymsla í kjallara.
*Hjóla og vagnageymsla í kjallara.
*Geymsla í kjallara.
*Þvottahús sameiginlegt í sameign.
*Sameign í góðu og jöfnu viðhaldi, fjársterkt.

Helstu punktar um sameign:
2015-2018 Gluggar endurnýjaðir.
2022 Skólp frá húsi og út í götu endurnýjað.
2023 Drenað með húsinu.
2024 Ein lyfta af tveimur endurnýjuð.
2024 Bílastæði endurbætt. 
2025 Anddyri lagfært.

Virkilega áhugaverð eign í góðu húsi, vel staðsett í rótgrónu hverfi miðsvæðis með góðri tengingu við alla helstu þjónustu í nágrenni við eignina.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone