Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Hjarðarhagi 54

107 Reykjavík

96.900.000 kr.

760.597 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028004

Fasteignamat

88.750.000 kr.

Brunabótamat

55.190.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
127,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 28. október 2025 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Hjarðarhagi 54, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. október 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 28.október frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 3-4ra herbergja útsýnisíbúð á 5. hæð (efstu) í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr við Hjarðarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er skráð 127,4 m2, þar af íbúð 99,7 m2 og bílskúr 27,7 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu, borðstofu og bílskúr. Um er að ræða fallegt hús teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt. Glæsilegt útsýni að Bláfjöllum, Keili, Bessastöðum, Akranesi, Akrafjalli, Esjunni og víðar. Frábær staðsetning í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir, íþróttaaðstöðu KR, sundlaug Vesturbæjar, skóla, leikskóla og aðra þjónustu. Talsvert af bílstæðum eru á lóð og búið er að setja upp sameiginlega hleðslustöðvar frá ON. 


Skv. upplýsingum frá húsfélagi og seljanda hefur eignin fengið talsvert viðhald: Nýbúið er að skipta um flest alla glugga, húsið múrviðgert og málað, strompur tekinn og settar nýjar plötur þar ásamt því að þakskegg var endurnýjað. Árið 2022 var eldhús endurnýjað. Svalir málaðar með epoxý árið 2020. Þak var málað og gert við þakplötur árið 2019. Fóðrun og endurnýjun á skolplögn undir húsinu árið 2018. Parket slípað upp árið 2017. Bílskúrshurð endurnýjuð árið 2015. Nokkur ár eru síðan húsið var drenað og allar frárennslislagnir fóðraðar út að brunni.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er stór með gegnheilu parketi og skáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu og flotuðu gólfi. Var endurnýjað árið 2022. Í innréttingu er ofn, helluborð, vaskur og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa og borðstofa eru björtu og rúmgóðu rými með gegnheilu parketi. Auðvelt væri að útbúa auka svefnherbergi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt. Stórir gluggar með glæsilegu útsýni allt frá Bláfjöllum, að Keili, Bessastöðum og víðar.
Svefnherbergi nr. 1 er rúmgott, með gegnheilu parketi á gólfi og innbyggðum fataskápum. Gluggar til norðurs með mjög fallegu útsýni.
Svefnherbergi nr. 2 er rúmgott, með gegnheilu parketi á gólfi og innbyggðum fataskápum. Gluggar til suðurs með glæsilegu útsýni.
Baðherbergi er flísalagt í gólf og veggi. Á baði er innrétting með skolvask og þvottavél sem fylgir, handklæðaofni og sturtu. 
Bílskúr er bílskúrslengju á lóð, nýleg bílskúrshurð, málað gólf, bílskúrshurðopnari hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl fylgir. Í bílskúrnum er hiti, rafmagn, heitt og kalt vatn.

Íbúðinni fylgir sameignileg hjóla- og vagnageymsla. Einnig eru matjurtakassar í garði þar sem hver eigandi hefur sinn kassa.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 96.700.000,- 

Verð kr. 96.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Theodór Emil Karlsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Theodór Emil Karlsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. des. 2020
54.300.000 kr.
55.500.000 kr.
127.4 m²
435.636 kr.
27. apr. 2017
40.150.000 kr.
46.500.000 kr.
127.4 m²
364.992 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Theodór Emil Karlsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ