Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Vista
svg

157

svg

142  Skoðendur

svg

Skráð  23. okt. 2025

fjölbýlishús

Beykiskógar 19 - íbúð 102

300 Akranes

55.500.000 kr.

755.102 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519895

Fasteignamat

46.800.000 kr.

Brunabótamat

46.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
73,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Domusnova Borgarnesi auglýsir til sölu íbúð 102, Beykiskógar 19, 300 Akranes. Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fallegri og vandaðri nýbyggingu með lyftu í rólegu hverfi á Akranesi. 

** Bókið skoðun **
Sjöfn Hilmarsdóttir, sími 691-4591 // sjofn@domusnova.is
Erla Dís Guðmundsdóttir, sími 698-7088 // erladis@domusnova.is

Beykiskógar 19 er vandað steinsteypt fjölbýli, einangrað að utan, klætt með málmklæðningu. Þak er uppstólað timburþak, klætt bárustáli. Húsið er á fjórum hæðum með 11 íbúðum, 2ja og 3ja herbergja. Á fyrstu hæð eru tvær íbúðir ásamt hjóla- og vagngeymsla og sérgeymslum íbúða, þrjár íbúðir eru á hverri hæð á 2.- 4.hæð. Lyfta er í húsinu. Innan lóðar eru 14 bílastæði auk þriggja bílastæði við götu. 
Aðalhönnuður: KJ hönnun ehf.
Íbúð 102 er 73,5 fm., þar af sérgeymsla 2,1 fm. Eigninni tilheyrir sérafnotaflötur í garði út frá alrými eignar, 5,0 fm. Innan eignar er forstofa, stofa og eldhús sem mynda alrými þaðan sem útgengt er út í garð, tvö svefnherbergi, baðherbergi þar sem einnig er þvottarými og geymsla. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna utan baðherbergis þar sem eru flísar á gólfi. A.T.H. verið er að leggja viðarparket og skilast eignin því að öllum líkindum með parketi en beðið er upplýsingar frá seljanda þessu til staðfestingar.
* 3ja herbergja íbúð á 1. hæð.
* Stærð íbúðar - 73,5 fm.
* Geymsla innan íbúðar og 2,1 fm. sérgeymsla í sameign.
* Hellulagður 5,0 fm. sérafnotareitur til suðurs.
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.


Nánari lýsing:
Inngangur: Sameiginlegur inngangur. Póstkassar staðsettir anddyri. Dyrasími. Flísar á gólfi í anddyri, stigagangur teppalagður. Lyfta í húsi.
Forstofa: Flísar á gólfi. Fataskápur og opið fatahengi frá Voke-III.
Eldhús: Vönduð ljós sérsmíðuð innrétting frá Voke-III með eyju, hæglokandi lamir á skúffum og skáphurðum. Raftæki frá electrolux, veggofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. 
Stofa: Myndar alrými ásamt eldhúsi. Útgegnt út á hellulagða verönd. Bjart og fallegt útsýni að Akrafjalli.
Svefnherbergi I: Sérsmíðaður fataskápur frá Voke-III.
Svefnherbergi II: Sérsmíðaður fataskápur frá Voke-III.
Geymsla: 2,0 fm. geymsla er innan íbúðar.
Baðherbergi: Vönduð ljós sérsmíðuð innrétting frá Voke-III, borðplata með marmaraáferð og hvítri handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta með sturtuhengi og handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og flísar á gólfi.
Sérafnotareitur: Hellulagður 5. fm. sérafnotareitur til norðurs sem heimilt er að stúka af í samræmi við teikningu arkitekta.

Geymsla: Sérgeymsla fylgir eigninni, stærð 2,1 fm. stúkuð af með möskaveggjum. Rafmagnstengill er innan geymslu. Gólf flotað. 
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt sérgeymslum íbúða. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 940,3 fm. Aðkoma og að bílastæðum beggja vegna við húsið eru hellulögð stétt með snjóbræðslu. Með húsinu fylgja 17 malbikuð stæði. Sorpgerði fyrir tunnur er á lóð. Að öðru leyti er lóðin þökulögð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði (að fimm stæðum næst tengibrunni við hús). Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans.

Annað: 
* Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
* Forhitari er á heitu neysluvatni
* Hægt er að loka fyrir bæði vatn og hita innan hverrar íbúðar.
* Íbúðin skilast með ljósi í eldhúsi og inná baði, í öðrum rýmum verður ljósapera.


Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone