Lýsing
*** SÖLUSÝNING: NJARÐARGATA 39, ÞRIÐJUDAGINN 04. NÓVEMBER 2025 KL 17:00-17:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS *** 
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Njarðargata 39.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og sjarmerandi íbúð með sérinngangi við Njarðargötu 39 en aðkoma er um bakgarð frá Haðarstíg, vinsæl og góð staðsetning í Þingholtunum í Reykjavík. Eignin er skráð samtals 46.8 fm að stærð og skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu og svefnherbergi/stofa.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Nánari lýsing eignar: 
Gólfefni íbúðarinnar eru ljóst viðarparket/þiljur og flísar.
Forstofa er með innbyggðum geymsluskáp og hægt að loka af frá holi. Stofan er opin og björt með gluggum í vestur sem snúa út í sameiginlegan hellulagðan bakgarð. Í framhaldi af stofunni er alrými með eldhúsi og svefnaðstöðu. Eldhús er vel skipulagt með viðar innréttingu sem er með efri-og neðri skápum og borðaðstöðu, gluggi með opnanlegu fagi. Svefnaðstaða er aðskilin frá eldhúsinu með frístandandi hillueiningu sem hægt er að loka af, rúmgóðir hvítir fataskápar. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, handlaug, salerni og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél. Geymsla er rúmgóð innan íbúðarinnar. í sameign er geymsluskápur sem tilheyrir íbúðinni. Húsið virðist í góðu lagi var sprunguviðgert og málað 2017.
Hér er um að ræða einstaklega sjarmerandi og fallega 2ja herbergja íbúð á góðum stað í Þingholtunum og staðsetning hússins og vesturverönd fyrir framan innganginn tryggja rólegt andrúmsloft mitt í borginni.    
FASTEIGNAMAT 2026 VERÐUR: 47.550.000 KR.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property. 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
 
					 
                     
                                 
                                 
                                 
                                 
                                 
                                 
                                 
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
				 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                                 
                                                             
                                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                     
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                            