Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Nánari lýsing.
Anddyri/skáli: Rúmgott með tveimur fatahengjum. Á gólfi er parket.
Borð- og setustofa: Eru í opnu sameiginlegu rými þar sem er parket á gólfi og útgengi á sér svalir eignar.
Eldhús: Nýleg innrétting (2019) frá IKEA með góðri vinnuaðstöðu. Á gólfi er parket og í eldhúsi er þakgluggi.
Svefnherbergi: Inn af eldhúsi, ágætlega rúmgott, gluggi til vesturs. Á gólfi er parket.
Svefnherbergi: Gengið inn frá skála, parket á gólfi og gluggi til vesturs.
Baðherbergi: Handlaug, baðkar með sturtuhaus, tengi fyrir þvottavél, á gólfi eru flísar og á baðherbergi er opnanlegur þakgluggi.
Í kjallara húseignar er sameiginlegt þvottahús og eign fylgir sameiginlegur garður.
Skv. upplýsingum frá seljanda var eldhús endurnýjað árið 2019 sem og gólefni innan íbúðar (að frátöldu baðherbergisgólfi). Sama ár voru raflagnir, rafmagnstafla, ofnalagnir og hluti af neysluvatnslögnum (kalda) endurnýjaðjar og lagt nýtt teppi á stigagang. Þá hafa drenlagnir einnig verið endurnýjaðar.
Falleg og vel skipulögð eign í grónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason lgfs., brynjolfur@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.