Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2011
76,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 13. nóvember 2025
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Ferjuvað 13-15, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 05. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 13. nóvember 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Alla upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali s. 8998815, kari@eignamidlun.is
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í vel staðsettu húsi við Ferjuvað í Norðlingaholti. Íbúðin er tóm og laus til afhendingar strax við kaupsamning. Fullbúin íbúð með gardínum, gólfefnum og uppþvottavél. Suðursvalir.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 305 við Ferjuvað 13-15, 110 Reykjavík, F2310424. 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu). Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 76,8 fm, þar af er íbúðarrými 69,6 fm og sérgeymsla er 7,2 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús. Sérgeymsla (7,2 fm). Stórar svalir í suður (11,2 fm).
*** Sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með fataskápum, flísar á gólfi.
Eldhús er opið með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými með góðri tengingu við eldhús, parket á gólfi. Útgengt er á 11,2 fm suðursvalir úr stofu. Rýmið er opið og bjart mót suðri.
Svefnherbergi 1 er rúmgott (12,0 fm) með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 (9,8 fm) er einnig með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri hvítri innréttingu með skúffum og handlaug. Sturtuklefi. Vegghengt salerni. Ofn. Flísar á gólfi og á vegg við innréttingu og salerni og í sturtuklefanum.
Sérgeymsla (7,2 fm).
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Gólfhiti er í öllum rýmum og auk þess handklæðaofn á baðherbergi. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. feb. 2012
7.420.000 kr.
538.700.000 kr.
2139.3 m²
251.811 kr.
23. jún. 2011
1.420.000 kr.
369.000.000 kr.
2762.4 m²
133.579 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025