Opið hús: Skólabraut 3, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 01 02 08. Eignin verður sýnd mánudaginn 17. nóvember 2025 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Eignin er skráð 79,3 fm hjá HMS og er geymslan 4,8 fm þar af.
Nánari lýsing eignar:
Komið inn á parketlagt anddyri með fataskáp.
Eldhús er opið við stofu, með góðri innréttingu .
Stofan er björt og er útgengt á hellulagt svæði fyrir utan húsið.
Svefnherbergið er með góðu skápaplássi.
Baðherbergi er flísalagt með baðinnréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Ljóst eikarparket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.
Sér geymsla íbúðarinnar er á hæðinni.
Verið að klára utanhúsviðgerðir á Skólabraut 3-5 sem felast í að endurnýja þak, þakkant, rennur, glugga, múrviðgerðir og málun og hafa núverandi eigendur greitt þann kostnað.
Þjónustukjarni er á jarðhæðinni. Þar er rekið fjölbreytt félagsstarf og margvísleg tómstundastörf í boði eins og t.d. handavinna, útskurður, bókband, leirlist og fleira. Þá eru spilakvöld haldin, bingó, billiard, pútt og fleira. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu ásamt morgunkaffi. Einnig er hægt að fara í hárgreiðslu og fótsnyrtingu. Húsvörður er starfandi í húsinu. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og heilsugæslu, sundlaug, World class, bókasafn og Hagkaup á Eiðistorgi.
Eignin er laus við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.