Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Sóleyjarimi 5

112 Reykjavík

77.400.000 kr.

771.685 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2271658

Fasteignamat

71.000.000 kr.

Brunabótamat

54.630.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2005
svg
100,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu.  Virkilega bjarta og fallega íbúð á 2. hæð í vönduðu + 50 ára lyftu fjölbýli við Sóleyjarima 5, 112 Reykjavík. Íbúðin ásamt geymslu er 100,3 fm og þar við bætist bílastæði í snyrtilegri bílageymslu. Húsið er byggt árið 2005 og hefur alla tíð verið í góðu viðhaldi og húsfélag er sterkt. Sérinngangur í íbúð af svalagangi. Rúmgóðar svalir með svalalokun.

Nánari lýsing:
Eignin telur forstofu með flísum á gólfi, gangur með parketi á gólfi og við forstofu er stór fataskápur, tvö svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting með lýsingu, upphengt wc og flísalagðri sturtu með glervegg. Snyrtileg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á 9 fm svalir sem eru með svalalokun. Þvottahús innan íbúðar með góðum skáp og innréttingu.
Húsið er byggt 2005, steinað að utan og er því viðhaldslétt. Lóð er snyrtileg.
Sérgeymsla í kjallara er 6,4 fm og fylgir íbúðinni. Í kjallara er snyrtileg sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sér bílastæði með rafhleðslustöð í bílakjallara er þurrt og snyrtilegt.

Falleg íbúð, vel umgengin á góðum stað.  Einn eigandi frá upphafi. Stutt er í alla þjónustu en Spöngin er hinum megin við götuna og þar er góður verslunarkjarni, Heilsugæsla Grafarvogs og Borgarbókasafn Menningarhús. Í verslunarkjarnanum er Hagkaup, Bónus, Lyfja, Vínbúðin, Dominos, Hamborgarabúllan, Huppa, Bakarameistarinn, Serrano og Kurdo Kebab auk blómabúðarinnar Í húsi blóma. 

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                        
                                                        
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum