Lýsing
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngang í snyrtilegu fjölbýlishúsi. Birt stærð eignar er 79,1 fm. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði og á lóðinni eru næg bílastæði og hleðslustaurar fyrir fjóra bíla. Mjög góð staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, framhald-, grunn- og leikskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll, sundlaug og íþróttamiðstöðina í Dalhúsum, verslunarmiðstöðina Spöngina, útvistarsvæðið í Gufunesi og mikið er af frábærum gönguleiðum í næsta nágrenninu.
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, gang og geymslu innan íbúðar. Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn um sérinngang, fatahengi, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, útgengi út á sólríkar og skjólgóðar suður svalir, parket á gólfi.
Eldhús: Með hvítri/viðar innréttingu, nýr bakarofn og spanhelluborð, vifta, uppþvottavél sem fylgir með, borðkrókur, opið inn í stofu, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum/viðar fataskápum, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, dúkur á gólfi.
Baðherbergi / þvottahús: Endurnýjað 2022. Ný hvít innrétting, speglaskápur, sturta, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á veggjum að hluta og á gólfi.
Gangur: Úr forstofu er gengið inn í gang, parket á gólfi.
Geymsla: Er innan íbúðar, skápur, dúkur á gólfi.
Sameign: Í sameign á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla og tæknirými.
Húsið: Mosarimi 9,11,13 og 15 er byggt 1994. Í húsinu eru 18 íbúðir.
Lóðin: Sameiginleg 2966 fm snyrtileg og vel við haldin lóð. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði og á lóðinni eru næg bílastæði og hleðslustaurar fyrir fjóra bíla. Göngustígur sem liggur á milli blokkanna er upphitaður.
Staðsetning: Smellið hér.
Góð fjölskyldueign á góðum stað í Grafarvogi - Eign sem vert er að skoða - Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali í s. 697 6288 eða ragnheidur@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.