Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Veghús 31

112 Reykjavík

59.500.000 kr.

847.578 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2040787

Fasteignamat

53.450.000 kr.

Brunabótamat

35.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
70,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

*Eignin er seld og er í fjármögnun*

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vandaða og mikið endurnýjaða 70,2 fermetra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með suðurverönd með aðgengi í stóran afgirtan þakgarð og fallegu útsýni í nýlega viðgerðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi við Veghús 31 í Grafarvogi.

Mjög stór lóð er í kringum húsið og aðkoma að húsinu er góð með stóru og miklu bílaplani með miklum fjölda bílastæða. 

- Húsið er nýlega múrviðgert og málað að utan, auk þess sem verið er að skipta um viðeigandi gler í íbúðinni og verður það klárað fyrir afhendingu.
- Báðar lyftur í stigahúsi eru nýjar, teppi á sameign eru ný og sameign er nýmáluð.
- Tvær rafhleðslustöðvar voru nýlega settar upp á bílastæði hússins

- Nýjar óísettar innihurðir í íbúð fylgja. 

Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð með fatahengi.
Gangur, parketlagður.
Baðherbergi, nýlega endurnýjað, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting, vegghengt wc og stór flísalögð sturta með sturtugleri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi, rúmgott, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Stofa / borðstofa, parketlögð og björt. Úr stofu er útgengi á hellulagða verönd til suðurs með aðgengi í stóran sameiginlegan þakgarð.
Eldhús, opið við stofur, parketlagt og með fallegum hvítum innréttingum, helluborði og innbyggðri uppþvottavél. Stór áföst eyja er á innréttingu með helluborði og borðaðstöðu.
Sérgeymsla, er við hlið inngangs í íbúðina og er hún með lökkuðu gólfi og hillum. 

Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjólageymsla.

Húsið að utan er nýlega viðgert og málað og sameign er öll endurnýjuð og mjög snyrtileg.

Lóðin er fullfrágengin með miklum fjölda bílastæða og góðri aðkomu.

Góð staðsetning í hinu gróna Húsahverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, golfvöll, kvikmyndahús, sundlaug, skíðabrekku, skautahöll, skemmtilegar gönguleiðir, verslun og ýmsa aðra þjónustu. Einnig er stutt út á helstu stofnbrautir. 

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.


 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. mar. 2016
20.800.000 kr.
23.200.000 kr.
70.2 m²
330.484 kr.
10. ágú. 2011
13.900.000 kr.
16.900.000 kr.
70.2 m²
240.741 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone