Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
raðhús

Heiðarbrún 88

810 Hveragerði

64.900.000 kr.

711.623 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2210338

Fasteignamat

61.550.000 kr.

Brunabótamat

54.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
91,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Laus strax

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og mikið endurnýjaða íbúð við Heiðarbrún 88, 810 Hveragerði.
Endaíbúð í þriggja íbúða raðhúsi, með góðum suðurgarði.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhús, borðstofu og stofu, tvö svefnherberg, baðherbergi, geymsla/þvottahús og geymsluris.
Eignin er samtals 91,20 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Eignin getur verið laus fljótlega.
Fasteignamat eignarinnar er kr. 61.550.000,-


Sjá staðsetningu hér.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.


Nánari lýsing:
Forstofa með góðu skápaplássi, innfelld lýsing. 
Hjónabergi er rúmgott, hljóðvistarplötur við höfðagafl rúms, fataherbergi með góður skápaplássi, tvennir gluggar til norðus.
Geymsluloft er yfir öllu húsinu. Aðgengi að því er frá fataherbergi. 
Svefnherbergi með tvöföldum skáp, glugga til norðurs.
Baðherbergi með walk-in sturtu, innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni með svokölluðu royal flush, handlaugarinnrétting, reyklitaður spegill. Gluggi til austurs.
Þvottahús með góðri innréttingu. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðir skápar.
Alrými sem telur eldhús, stofu og borðstofu:
Eldhús
með nýlegri eldhúsinnrétting og eldundareyju. Siemens spanhelluborð, Simens ofn með 4D hitaflæði, sjálfþrífandi og hitamæli, tvöfaldur ísskápur frá LG og innbyggð uppþvottavél frá Electrolux. Gluggi út í suðurgarð.
Stofa og borðstofa eru einnig með gluggum til suðurs, útgengt er út á sólpall um 'sólskála'.
Bílastæði er hellulagt, pláss fyrir þrjá bíla. 3ja fasa hleðslustöð til staðar.
Garður snýr í suður, er einnig austan megin við húsið. Afgirt að hluta. Pallur á suðurhlið hússins.
Gólfhiti er í allri eigninni.
Gólfefni er flísar frá Flísabúðinni.

Nýlegar framkvæmdir skv. fyrrum seljanda:
Endurnýjaðar allar neysluvatnslagnir
Skolp endurnýjað út í brunn
Gólfhiti lagður í allt húsið,nema í þvottahús, stjórnað með wifi stýringu.
Eldhús endurnýjað 
Baðherbergi endurnýjað 
Dregið nýtt rafmagn, uppfætt í 3 fasa töflu með rauntímamæli 
Nýir tenglar og rofar
Lagt fyrir 3 fasa hleðslustöð, hleðslustöð getur fylgt. 
Nýjar þröskuldalausar hurðir 
Ný gólfefni á öllu húsinu, Casal Grande Manhattan 60x60cm úr Flísabúðinni
Gluggakarmar og útidyrahurð málað. 


Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.


Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. jan. 2022
36.400.000 kr.
54.900.000 kr.
91.2 m²
601.974 kr.
25. sep. 2020
32.250.000 kr.
35.000.000 kr.
91.2 m²
383.772 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone