Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
svg
Byggt 1985
svg
236,5 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Virkilega fallegt og vel viðhaldið einbýlishús með góðu útsýni ásamt bílskúr á góðum og skjólgóðum stað á Holtinu í Hafnarfirði. 
Eignin er alls 236,5 fm að stærð sem skiptist þannig að neðri hæðin í húsinu er 122,6 fm, efri hæðin 80,1 fm og bílskúrinn 33,8 fm.

SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN!!

Nánari lýsing:
Neðri hæð er á pöllum:

Forstofa með flísum á gólfi og skápum. 
Gestasnyrting með flísum á gólfi, mósíak flísar á vegg, sturta, gluggi. 
Hol með parket á gólfi.  
Stofa og og borðstofa með teppi á gólfi, arinn og útgengt út á verönd/lóð, aukin lofthæð er í stofu
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél, vifta, helluborð, parket á gólfi og flísar á milli skápa. 
Þvottahús er innaf eldhúsinu, flísar á gólfi.
Geymsla innaf þvottahúsinu, flísar á gólfi, skápar, útg. út lóð. 

Efri hæð:
Tréstigi á milli hæða
Rúmgott sjónvarpshol/alrými, parket á gólfi og útgengt út á suð/austur svalir. 
Fjögur rúmgóð herbergi, parket á gólfi og skápar í tveim. 
Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar, innrétting, gluggi.  

Bílskúrinn: Er með rafmagni, vatn (bara kalt), geymslu/milliloft, einnig er kjallarageymsla undir bílskúr.  

Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda:
Klæðning á framhlið hússins endurnýjuð ásamt þakkanti og þakrennum.
Svalir endurbyggðar úr gagnvörðu efni og annað yfirfarið þeim tengt.
Þak málað ( hefur fengið reglulegt viðhald alla tíð)
Múrhúðun á bílskúr og vegg gegnt inngangi lagfærð þar sem þurfti.
Allir gluggar yfirfarnir fyrir málun á húsinu 2019
Hús og bílskúr almálað 2019 og að hluta til 2025 ( áveðurshlið)
Gler í þakglugga endurnýjað 2025

* Lóð er ræktuð og sérlega falleg
* Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin
* Bílastæði er hellulagt og næg bílastæði fyrir. 
* Húsið er hannaði og teiknaði Björn S. Hallson arkitekt.

Frábært útsýni til fjalla. Stutt í margskonar þjónustu s.s grunnskóla og tvo leikskóla svo og margskonar íþróttaaðstöðu s.s. á Ásvöllum hjá Haukum, Ásvallasundlaug, tvær stórar líkamsræktarstöðvar, Golfklúbbinn Keili, matvöruverslanir og margt fleira.  Góðir göngustígar eru við húsið og næsta nágrenni, einnig er göngubrú yfir Rekjanesbrautina sem styttir gönguleiðir  að næsta nágrenni þar sem helsta þjónusta er.  

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone