Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Upplýsingar
Byggt 2024
74,1 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Heldri borgarar
Lýsing
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Borgarbraut 63, 310 Borgarnes, íbúð 404.
Um er að ræða stórglæsilega tveggja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í lyftuhúsi með bílakjallara. Íbúðir fyrir 55 ára og eldri eru á 2.–4. hæðum hússins, en á jarðhæðinni er heimavist nemenda við Menntaskóla Borgarfjarðar.
Húsið er staðsteypt, einangrað og útveggir klæddir seltuþolinni álklæðningu. Gluggar og útihurðir eru ál/tré. Rúmgóðar svalir umlykja hverja hæð fyrir sig og aðskilur steyptur veggur svalir milli íbúða. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara.
Stærð íbúðarinnar er 68,3 fm. Að auki fylgir íbúðinni 5,8 fm geymsla í kjallara. Samtals er því stærð íbúðarinnar 74,1 fm skv. skráningu HMS. Svalir íbúðarinnar eru rúmgóðar og snúa til norðurs og austurs. Ekið er í bílakjallara um aðrein móts við Heilsugæslu Borgarness. Lyfta er úr bílakjallara upp á hæðirnar. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð. Forstofa er flísalögð og sameignargangur lagður teppum frá Kjaran.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í hol. Þaðan er gengið í svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými. Gengið er úr stofu um rennihurð út á svalir. Gert er ráð fyrir möguleika á svalalokun.
Á gólfum íbúðarinnar er fljótandi harðparket (Mammut Oak) frá Birgisson. Vandaðar flísar eru í votrými frá Harðviðarvali samkvæmt skilalýsingu seljanda.
Hol: Parket á gólfi og sérsmíðaðir fataskápar.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og sérsmíðaður fataskápur.
Baðherbergi: Vandaðar flísar á gólfi og veggjum og sérsmíðuð innrétting. Vegghengt salerni, handklæðaofn og walk-in sturta. Öll tæki af vandaðri gerð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Parket á gólfi og sérsmíðuð innrétting. Helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Vönduð tæki frá Electrolux.
Stofa: Bjart og fallegt rými með stórum gluggum og útgengi á svalir.
Geymsla: Málað gólf, loft og veggir. Skilrúm og hurð úr stáli.
Bílastæði í bílakjallara: Stofnstrengur lagður í stæði tilbúinn til tengingar fyrir hleðslustöð rafbíls. Á lóð eru að auki sex bílastæði, þar af tvö fyrir hreyfihamlaða.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Hér er um mjög fallega og vandaða eign að ræða þar sem öll helsta þjónusta, svo sem verslun, heilsugæsla og sundlaug, er í göngufæri.
Áætlað er að íbúðin verði afhent í ágúst 2026.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.