Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 84,1 m2, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi ásamt bílskúr við Ugluhóla 4 í Reykjavík. Eignin er skráð 105,6 m2, þar af íbúð 83,9 m2 og bílskúr 21,7 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, gangur, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Góðar svalir til suðurs með miklu útsýni. Bílskúr stendur á lóð fyrir framan húsið. Sér geymsla er í sameign á jarðhæð. Hjólageymsla og þvottahús eru einnig í sameign á jarðhæð. Stigagangur er mjög snyrtilegur. Leiktæki eru á lóð. Frábær staðsetning þar sem stutt er í matvöruverslun, grunnskóla, leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni. Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur er með flísum á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi og innréttingu með uppþvottavél, ísskáp, bakaraofni, helluborði og viftu. Flísar eru milli efri og neðri skápa. Góður borðkrókur er í eldhúsi.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á svalir til suðurs með miklu útsýni.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með góðum fataskáp og dúk á gólfi.
Svefnherbergi 2 er inn af forstofu með fataskáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Bílskúr stendur á lóð í sex bílskúra húsi, er upphitaður og með steypt gólf. Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni. Sjálfvirkur bílskúrshurðaropnari. Hillur, vinnuborð og verkfæri sem eru í bílskúr fylgja með.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara.
Þvottahús er í sameign á jarðhæð með sér rafmagnstengli fyrir íbúðina. Þvottavél fylgir. Rúmgott þurrkherbergi er við hlið þvottahúss.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Verð kr. 64.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.