Opið hús: Naustabryggja 29, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 03 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 12. apríl 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:45.
Lýsing
Húsið er byggt árið 2001 af BYGG, einu reyndasta og traustasta byggingarfélagi landsins, teiknað af Birni H. Jóhannessyni arkitekt.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Eignin Naustabryggja 29 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 224-8341, birt stærð 121.8 fm. Neðri hæð er merkt 03 0301, skráð 100fm. Efri hæð er merkt 03 0303, skráð 21,8fm. Eigninni fylgir einnig sérmerkt bílastæði í bílakjallara merkt 01 Y1. Allir séreignafermetrar eru innan íbúðar.
Aðalhæð:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fataskápum.
Hol: Tengir saman öll rými neðri hæðar. Hringstigi frá holi upp á efri hæð.
Svefnherbergi I: Rúmgott. Gott barnaherbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með innbyggðum fataskáp á heilum vegg.
Þvottahús: Flísar á gólfi og upphengdar hillur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, falleg innrétting með granít borðplötu og undirlímdum vaski, upphengt salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi.
Eldhús: Vönduð sérsmíðuð innréttingu frá Brúnás með efri og neðri skápum og granítborðplötu. Gott skápa og vinnupláss. Innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, innbyggt helluborð með upphengdum háf fyrir ofan. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa: Einstaklega fallegt stofurými með mikilli aukinni lofthæð og fallegum stórum gluggum sem snúa til suðurs. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.
Efri hæð: Gengið er upp hringstiga frá holi.
Stofa: Rúmgott opið stofurými með útgengi út á svalir til austurs. Býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, ma. að stúka af hluta og útbúa þriðja svefnherbergið (eins og er á upprunalegu teikningu), sem auka stofu, sjónvarpsstofu, skrifstofurými ofl.
Geymsla er inn af rýminu með góðum hillum.
Gólfefni: Eikarparket á gólfum að undanskyldu baðherbergi, eldhúsi og þvottahúsi sem eru með flísum á gólfi.
Sameign: Tvær sameiginlegar geymslur fyrir hjól og vagna á jarðhæð.
Bílastæðahús: Sérmerkt bílastæði í bílastæðahúsi fylgir eigninni.
Bryggjuhverfið er einstaklega fallegt og vel skipulagt með smábátahöfn í hverfinu sem gefur því sérstakan svip og sjarma. Smábátahöfnin tekur um 40-50 báta og hafa íbúar aðgang að höfninni. Þá býður hverfið upp á einstakt aðgengi að útiveru umhverfis fjörur, sand, báta og bryggjur. Þá skemmir ekki fyrir að svæðið allt þykir sérstaklega skjólsælt fyrir ríkjandi norðan og suðvestanáttum og býður upp á fallegar göngu- og hjólaleiðir til nærliggjandi svæða á borð við Geirsnef, Elliðaárdal og Grafarvog. Stutt er á stofnleiðir og skammt að sækja alla helstu þjónustu upp á Höfða s.s. heilsugæslu, matvöruverslun, mathöll o.m.fl.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.