Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1981
151,8 m²
7 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Útsýni
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Álfhólsvegur 79B, raðhús með TVEIMUR ÍBÚÐUM, 4RA HERB Á EFRI HÆÐUM OG 3JA HERB. CA 55 fm Í KJALLARA MEÐ SÉRINNGANGI AUÐVELT AÐ SAMEINA MEÐ HRINGSTIGA. Húsið er kjallari og tvær hæðir. Í kjallara er íbúðaraðstaða/leigueining. Efri hæðir eru tvær, miðhæð er forstofa, 3 svefnherb og glæsilegt flísalagt baðherb. Efsta hæð er rúmgott stofurými, eldhús, snyrting/geymsla og búr, suðursvalir og glæsilegt útsýni.Talsvert endurnýjuð eign á frábærum stað. Sérmerkt bílastæði með hleðslustöð. BÓKIÐ SKOÐUN, ÞÓRARINN SÍMI 899-1882, THORARINN@EIGNAMIDLUN.IS
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 205-8189, nánar tiltekið eign merkt 01-01, birt heildarstærð 151.8 fm en í kjallara er ca 35 fm óskráð rými. Svalir eru til suðurs af efri hæð og stór ca 45 fm afgirt sérverönd í suður.
Kjallari er séríbúðaraðstaða: Forstofa, eldhús, stofa, baðherbergi og tvö gluggalaus en vel loftræst herbergi ásamt geymslu.
Miðhæð er: Forstofa, hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með stórum skápum þar sem er tengi fyrir þvottavél og þurkara.
Efri hæð er: Stór stofa, rúmgott eldhús, wc/geymsla og búr. Stórar suðursvalir út frá stofu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
INNGANGSHÆÐ: Forstofa með góðum endurnýjuðum skápum hiti í gólfi. HOL með harðparketi og geymslu undir stiga milli hæða. HERBERGI I: Forstofuherbergi með parketi. HERBERGI II: Rúmgott parketlagt herbergi. HERBERGI III: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og skápum. BAÐHERBERGI: Vandað endurnýjað flísalagt baðherbergi með vegghengdu salerni, góðum sturtuklefa með glerskilrúmi, góðri nýlegri innréttingu og eins er stór innrétting og skápar þar sem m.a má finna tengi fyrir þvottavél og þurkara. Hiti er í baðgólfi.
EFRI HÆÐ: Rúmgóð stofa með parketi, gengið út á góðar svalir í suður. Rúmgott eldhús með eldri innréttingu , parket. GLÆSILEGT ÚTSÝNI. Wc/geymsla, allar lagnir til staðar. Búr innaf eldhúsi.
KJALLARI: Sérinngangur framan við inngang er ca 25 fm timburverönd, Íbúð/ séríbúðaraðstaða/leigueining. Forstofa/anddyri, eldhús með góðri innréttingu , opið yfir í stofurými. Baðherbergi með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél. Tvö rúmgóð, gluggalaus og vel loftræst svefnherbergi og góð geymsla innaf öðru.
AÐKOMA OG GARÐUR: Mjög góð aðkoma, hellulögð og upphituð að bílastæðum þar sem íbúðin á sérmerkt stæði með hleðslustöð. Framan við inngang í húsið er sér afgirt verönd til suðurs.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. mar. 2011
26.550.000 kr.
27.000.000 kr.
151.8 m²
177.866 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026