Lýsing
Eignaland kynnir í einkasölu Súluhólar 6, Reykjavík. Þriggja herbergja íbúð sem skráð er skv HMS 74,4fm. Vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. leik-, grunn- og framhaldsskóla, líkamsrækt World Class, sundlaug, íþróttasvæði, verslun og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum.
Nánari upplýsingar eru hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is eða Siggi Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með fataskáp. Eldhús er stúkað af frá alrými, með rúmgóðri innréttingu. Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð. Tvö herbergi með fataskápum. Baðherbergið er með flísum á veggjum og baðkari með sturtu aðstöðu.
Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi, þar eru flísar.
Sameignin snyrtileg og hússjóður í fínum málum.
Búið er að skipta um glugga og svalahurð.
Áhugaverð eign á vinsælum stað í Breiðholtinu.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasölum Eignalands:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Sigurður Fannar, sími 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.