Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
raðhús

Stapasíða 15b

603 Akureyri

89.900.000 kr.

555.624 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150768

Fasteignamat

84.050.000 kr.

Brunabótamat

86.720.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
161,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 16. júlí 2026 kl. 16:00 til 16:45

Opið hús: Stapasíða 15b , 603 Akureyri. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 16. júlí 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:45.

Lýsing


EIGNAVER 460-6060    ***** OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 16.JÚLÍ MILLI KL: 16:00 -16.45 *****
Stapasíða 15B - Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja 161,8 fm íbúð í raðhúsi á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Síðuhverfi.

Eignin skiptist í forstofu, hol, geymslu, þvottahús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofu, eldhús, bílskúr og geymslupláss í sameign. 

Neðri hæð:
Forstofa er flísalögð ásamt holi og gangi inn af forstofu. Gott pláss er undir stiga.
Svefnherbergi á  fyrstu eru tvö, bæði með parketi á gólfum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með skúffum og skápum. Sturtuklefi með rennihurðum. Gólfhiti er á baðherberginu.
Þvottahús með ágætri innréttingu með vaski í bekkplötu. Gengið er út á baklóð þar sem er steypt verönd og garður. 
Geymsla er með parketi á gólfum og hillum. Gluggi er á geymslu. Möguleiki á fimmta svefnherbergi.
Bílskúr er skráður 22,2 fm af heildar eigninni. Þar er lakkað gólf, skápar og vinnubekkur. Nýleg rafdrifin innkeyrsluhurð.

Efri hæð:
Stigi á milli hæða er með parketþrepum.
Eldhús er með nokkuð rúmgóðri innréttingu (filmuð), flísar milli efri og neðri skápa og pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu. Bakaraofn í vinnuhæð. Gott útsýni er frá eldhúsi.
Stofa er með parketi á gólfum, í stofu er aukin lofthæð. Frá stofu er gengið út á svalir til suðurs. Fallegt útsýni.
Baðherbergi er rúmgott, góð innrétting, vegghengt salerni, baðkar, handklæðaofn og opnanlegur gluggi til norðurs. Gólfhiti er á baðherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi er með parketi á gólfum og skáp.

Annað:
- Sameign er í kjallara á vestur enda hússins.
- Vinsæl staðsetning rétt við leik og grunnskóla.
- Hitakapall í báðum þakrennum.
- Gróinn garður bakvið hús.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veita:
Begga            s: 845-0671   /begga@eignaver.is
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is



 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone