Opið hús: Tröllateigur 17, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. september 2026 milli kl. 17:20 og kl. 17:50.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Tröllateig 17 í Mosfellsbæ. Stór afgirt timburverönd í suðurátt. Eignin er skráð 121,4 m2, þar af íbúð 118,1 m2 og geymsla 3,3 m2. Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, hol/gangur, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, geymslu og útigeymslu. Frábær staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Geymsla/herbergi er inn af forstofu með glugga, skáp og flísum á gólfi. Hefur verið nýtt sem skrifstofa/herbergi.
Hol/gangur er með parketi á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er vaskur, ofn, helluborð og háfur.
Stofa/borðstofa er rúmgóð stofa sem og borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra afgirta timburverönd í suðurátt.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt og með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtu aðstöðu. Gluggi á baðherbergi.
Þvottahús er rúmgott þvottahús og með flísum á gólfi. Er inn af eldhúsi og með glugga.
Einnig er sérgeymsla á lóð með rafmagni. Er skráð 3,3 m2.
Verð kr. 94.900.000 kr
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.